Umhverfis- og samgöngunefnd afgreiddi í morgun þingmannamál sem felur í sér að skipulagsvald sé tekið af Reykjavíkurborg á Reykjavíkurflugvelli og fært til ríkisins. Á fundi nefndarinnar í morgun var frumvarpinu breytt með þeim hætti að skipulagsvald yfir flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum verður líka fært frá sveitarfélögum til ríkisins. Málið var afgreitt út úr nefndinni í morgun þrátt fyrir mikla andstöðu minnihluta hennar. Allur þingflokkur Framsóknarflokksins stendur á bakvið frumvarpið og fyrstu flutningsmaður þess er Höskuldur Þórhallsson. Hann er einnig formaður umhverfis- og samgöngunefndar.
Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna sem situr í nefndinni, segir í stöðuuppfærslu á Facebook: "Rétt í þessu var afgreitt út úr umhverfis- og samgöngunefnd þingsins forkastanlegt þingmál þar sem gert er ráð fyrir því að skipulagsvaldið sé tekið af Reykjavíkurborg vegna flugvallarins. Málið tók svo stórtækum breytingum eftir að fundur hófst nú í morgun og Egilsstaðaflugvelli og Akureyrarflugvelli bætt við og þar með skipulagsvaldi þeirra sveitarfélaga. Í frumvarpinu var gert ráð fyrir því að skipulagsvaldið að þessu leyti færðist til Alþingis en breytingin sem var kynnt nefndarmönnum eftir að fundur hófst gerir ráð fyrir því að skipulagsvaldið sé á hendi innanríkisráðherra. Minnihlutinn, við Katrín Júlíusdóttir og Róbert Marshall, mótmæltum málsmeðferðinni harðlega. Viðkomandi sveitarfélög fengu ekki að koma á fund nefndarinnar og heldur ekki ráðuneyti innanríkismála og skipulagsmála sem er umhverfisráðuneytið. Málið var loks tekið út með liðsauka sem sóttur var til annarra nefnda og hefur ekki tekið þátt í umfjöllun um málið hingað til. Hér eru á ferðinni forkastanleg vinnubrögð og yfirgangur sem er formanni nefndarinnar og meirihlutanum til skammar."
Katrín Júlíusdóttir segir einnig frá málinu á Facebook-síðu sinni og segist hafa haldið að stjórnarmeirihlutinn gæti ekki komið henni á óvart lengur. „En þá gerist það að mál Höskuldar Þórhallssonar um að taka skipulagsvaldið af Reykjavík þegar kemur að flugvellinum er rifið út úr nefnd, gerbreytt og nú er skipulagsvaldið einnig tekið af Akureyri og Egilsstöðum eða þeim sveitarfélögum sem eru með millilandaflugvelli. Fengum málið sent breytt kl. 8.13. 10 mínútum síðar er það rifið út úr nefnd gegn vilja okkar.“ Hún segir að hún, Svandís Svavarsdóttir og Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, hafi óskað eftir því að þessi sveitarfélög fengju að koma fyrir nefndina og ræða við hana um málið en því hafi verið hafnað.
„Sama hvað fólki kann að finnast um staðsetningu flugvallarins í Reykjavík þá hlýtur okkur öllum að vera annt um vönduð vinnubrögð og sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga.“
Ég hélt að þessi stjórnarmeirihluti gæti ekki komið mér á óvart lengur. En þá gerist það að mál Höskuldar Þórhallssonar...Posted by Katrín Júlíusdóttir on Monday, June 1, 2015
Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar sem situr einnig í nefndinni, segir í stöðuuppfærslu á Facebook að pólitískt reginhneyksli hafi átt sér stað umhverfis- og samgöngunefnd. "Nógu arfaslakt var mál formannsins Höskuldar Þórhallssonar um að færa skipulagsmál Reykjavíkurflugvallar undir Alþingi en meirihluti nefndarinnar hefur nú lagt til breytingar á málinu á síðustu metrunum (á síðasta fundi um málið) þannig að skipulagsvald yfir öllum flugvöllum sem geta sinnt millilandaflugi er tekið af m.a. sveitarfélögunum á Akureyri og Egilsstöðum. Án þess að þeim sé gefið færi á umsögnum eða andmælum. Málið var afgreitt út úr nefndinni núna á níunda tímanum við hávær mótmæli okkar Svandísar Svavarsdóttir og Katrínar Júlíusdóttir."