Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í stjórn RÚV gagnrýnir fréttir Stundarinnar um Illuga

illugi-gunnarsson.jpg
Auglýsing

Eiríkur Finnur Greips­son, full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stjórn RÚV, gagn­rýnir frétta­mið­il­inn Stund­ina harð­lega fyrir lág­kúru­leg vinnu­brögð og fyrir að skeyta engu um mann­orð heið­ar­legs og dug­legs fólks vegna frétta­flutn­ings mið­ils­ins um tengsl Ill­uga Gunn­ars­son­ar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, við fyr­ir­tækið Orku Energy. Gagn­rýnin er sett fram í um­mælum við Face­book-­stöðu­upp­færslu Ill­uga þar sem ráð­herr­ann birti skatt­fram­tal sitt vegna und­an­far­innar ára.

Eiríkur Finnur situr í stjórn RÚV fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þangað var hann skip­aður í jan­úar á þessu ári eftir að Ill­ugi bað hann um það. RÚV hefur einnig fjallað umtals­vert um tengsl Ill­uga við fyr­ir­tækið Orku Energy. og meðal ann­ars spurt hann út í þær upp­lýs­ingar sem fram komu í frétta­flutn­ingi Stund­ar­innar um mál­ið. Þá sagði RÚV frá frétt Stund­ar­innar sem varð til­efni þess að Ill­ugi birti skatt­fram­tal sitt.

12165880_10206412610667108_639088761_n

Auglýsing

Í ummæl­unum segir Eiríkur Finnur frá því að hann hafi unnið með og þekkt Ill­uga frá ung­lings­árum og eig­in­konu hans frá fæð­ingu. Þau séu miklir vinir þeirra hjóna. "Ég verð að við­ur­kenna að ég skil ekki hversu lág­kúru­legum vinnu­brögðum er unnt að beita til þess eins að afla sér tekna og lífs­við­ur­væris af útgáfu frétta­mið­ils eins og Stund­ar­inn­ar, og skeyta engu um mann­orð heið­ar­legs og dug­legs fólks. Hver skyldi verða næstur fyrir aftöku­sveit­ina?"

Hefur ekki svarað spurn­ingum um greiðslu til OG Capi­tal



Illugi Gunn­ars­son hefur verið gagn­rýndur víða fyrir tengsl sín við Orku Energy, ekki síst vegna heim­sóknar til Kína í vor þar sem full­trúar frá Orku Energy voru líka, en Ill­ugi starf­aði fyrir fyr­ir­tækið árið 2011 auk þess sem hann hefur greint frá því að stjórn­ar­for­maður þess Haukur Harð­ar­son hafi keypt íbúð hans vegna fjár­hags­vand­ræða. Ill­ugi og fjöl­skylda leigja nú íbúð­ina aftur af Hauki.

Ill­ugi hefur sagt opin­ber­lega að hann hafi aðeins fengið 5,6 millj­óna launa­greiðsl­una frá Orku Energy og að sú greiðsla hafi verið vegna vinnu sem hann vann árið 2011. Hann birti launa­seðil sinn vegna greiðsl­unnar í fréttum Stöðvar 2 fyrir viku síð­an.

Í vik­unni greindi Stundin hins vegar frá að mið­ill­inn hefði heim­ildir fyrir því að eign­ar­halds­fé­lag sem þá var í eigu Ill­uga, OG Capital, hefði fengið 1,2 milljón króna greiðslu frá Orku Energy síðla árs 2012. Í kjöl­farið birti Ill­ugi skatt­fram­tal sitt og eig­in­konu sinnar vegna áranna 2012 og 2013 á Face­book og sagði það sýna að engar launa­greiðsl­ur, arð­greiðslur eða aðrar greiðslur hefðu komið til hans eða eig­in­konu hans á árinu 2012 eða 2013.  Illugi svar­aði því hins vegar ekki í stöðu­upp­færsl­unni hvort OG Capi­tal hefði fengið umrædda greiðslu síðla árs 2012.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None