Fyrri hluti fjármögnunar á sólarkísilverksmiðju Silicor Materials er lokið með hlutafjársöfnun upp á fjórtán milljarða íslenskra króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu í dag.
Félagið Sunnuvellir slhf. sem er í eigu íslenskra lífeyrissjóða og fagfjárfesta mun koma að uppbyggingu verksmiðjunnar á Grundartanga með tæplega sex milljarða eiginfjárframlagi. Átta milljarða framlag kemur meðal annars frá Hudson Clean Energy Partners, fjárfestingafélagi sem sérhæfir sig í fjárfestingum í endurnýtanlegri orku, og þýska iðnfyrirtækinu SMS Siemag.
Heildarkostnaðurinn við að reisa verksmiðju á Grundartanga er áætlaður 120 milljarðar króna en 60 prósent af heildarkostnaðinum á að koma í gegnum lán undir forystu Þróunarbanka Þýskalands. Jafnframt verður ráðist í frekari hlutafjársöfnun á næsta ári.
Silicor Materials samdi við danska verktakafyrirtækið MT Højgaard um að byggja 121 þúsund fermetra sólarkísilverksmiðju í júní. Samningurinn var metinn á 1,5 milljarða danskra króna, um 30 milljarða króna. Silicor Materials tilkynntu um miðjan júli 2014 að fyrirtækið hefði valið að byggja verksmiðjuna á Íslandi.
Fulltrúar Silicor Materials undirrituðu svo fjárfestingasamning við íslenska ríkið vegna verkefnisins í september 2014. Í apríl síðastliðinn var loks skrifað undir samninga um lóð, lóðaleigu og afnot af höfn við Faxaflóahafnir.
Áætluð ársframleiðsla verksmiðjunar er um 19 þúsund tonn og áætluð orkuþörf er um 60 megavött.
Bygging verksmiðju Silicor Materials er fjarri því óumdeild. Athafnamaðurinn Skúli Mogensen, sem á meðal annars flugfélagið Wow air, skrifaði til að mynda grein í Kjarnann þann 20. maí þar sem hann gagnrýndi áformin harðlega. Skúli, sem ætlaði sér að byggja vistvænt hótel í Hvalfirði, hefur sagt að hann muni ekki láta verða af því ef sólarkísilverksmiðjan rís.