Fyrrum stjórn 365 greiddi tugmilljóna skaðabætur

forsidumynd.000.jpg
Auglýsing

Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Pálmi Har­alds­son, Magnús Ármann og Þor­steinn M. Jóns­son greiddu sjóði í eigu Lands­banka Íslands tugi millj­óna króna fyrir að falla frá skaða­bóta­máli á hendur sér. Mál­ið, sem var upp­haf­lega tekið fyrir í hér­aðs­dómi haustið 2011, snýst um fléttu sem stjórn 365 ehf. greip til snemma í nóv­em­ber 2008 þegar allir fjöl­miðlar félags­ins voru seldir til félags í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar fyrir tæp­lega 1,4 millj­arða króna. Eftir í 365 ehf., sem síðar var end­ur­nefnt Íslensk afþrey­ing ehf., urðu millj­arða skuld­ir, meðal ann­ars við sjóð Lands­bank­ans.

Dómskvaddir mats­menn komust síðar að þeirri nið­ur­stöðu að 365 ehf. hefði verið ógjald­fært á þeim tíma sem fjöl­miðl­arnir voru seldir til Jóns Ásgeirs og því hefði átt að gefa félagið upp til gjald­þrota­skipta sam­kvæmt lög­um.

almennt_01_05_2014

Auglýsing

Í stað þess að gefa 365 ehf. upp til gjald­þrota­skipta ákváðu fjór­menn­ing­arn­ir, sem sátu í stjórn 365 ehf. á þessum tíma, að selja verð­mæt­ustu eignir þess til stærsta hlut­hafans Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og nota það fé sem fékkst fyrir til að greiða upp skulda­bréfa­flokk sem var á gjald­daga 5. nóv­em­ber 2008. Fimmti stjórn­ar­mað­ur­inn á þessum tíma, Árni Hauks­son, greiddi atkvæði gegn sölu fjöl­miðl­anna og sagði sig í kjöl­farið úr stjórn­inni. Hann rök­studdi ákvörðun sína meðal ann­ars með því að hann teldi gjörn­ing­inn lög­brot.

Landsvaki, þá dótt­ur­fé­lag Lands­bank­ans sem rak umræddan sjóð, taldi að með þessu hefðu Jón Ásgeir, Pálmi, Magnús og Þor­steinn mis­munað kröfu­höfum og brugð­ist þeirri skyldu að gefa gjald­þrota­fé­lag upp til skipta. Því stefndi Landsvaki mönn­unum fjórum árið 2011 og krafð­ist skaða­bóta.

Sátt náð­ist í mál­inu í jan­úar 2013, en ekki hefur áður verið greint frá henni opin­ber­lega. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa í sjóðnum greiddu menn­irnir fjórir nokkra tugi millj­óna króna til að losna frá mál­­sókn­inni. Sömu heim­ildir herma að krafa Landsvaka hafi numið nálægt 130 millj­ónum króna. Hún hafi því ekki feng­ist öll greidd.

Þetta er örstutt brot úr grein­inni um 365-sátt­ina. Lestu hana í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None