Gísli Marteinn: Reykvíkingar eru að sýna fjórflokknum fingurinn

gm.jpg
Auglýsing

Gísli Mart­einn Bald­urs­son, fyrrum borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík og dag­skrár­gerð­ar­maður hjá RÚV, seg­ist stoltur af því að Reyk­vík­ingar sýni til­burðum stjórn­mála­flokka sem hóta að taka af Reykja­vík skipu­lags­valdið eða grafa undan borg­inni með öðrum hætti fing­ur­inn með afger­andi hætti. Að mati Gísla Mart­eins end­ur­spegl­ast þetta í óvin­sældum fjór­flokks­ins, sem innan við 60 pró­sent lands­manna styðja nú, en yfir 90 pró­sent studdu ára­tugum sam­an. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Face­book sem Gísli Mart­einn setti inn í dag.

Gísli Mart­einn vísar þar í frum­varp um að taka skipu­lags­valdið í Vatns­mýr­inni af Reykja­vík­ur­borg, sem lagt hefur verið fram af nokkrum þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins, og yfir­lýs­ingar stjórn­mála­manna um sama efni.









Fjór­flokk­ur­inn hefur aldrei verið óvin­sælli en nú. Innan við 60% lands­manna styðja flokk­ana 4 sam­tals, en þeir voru á...

Posted by Gisli Mart­einn Bald­urs­son on Monday, May 4, 2015

Auglýsing






Kann­anir og gild­is­hlaðnar spurn­ingar



Í stöðu­upp­færsl­unn­i ­segir að fjór­flokk­ur­inn: Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Fram­sókn­ar­flokk­ur, Sam­fylk­ing og Vinstri græn, hafi aldrei verið óvin­sælli en nú. "Fjór­flokk­ur­inn er óvin­sælastur meðal ungs fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og skal engan undra enda sýna flokk­arnir því svæði full­komið áhuga­leysi. Und­an­tekn­ingin á því er þegar rík­is­stjórnin hótar að taka af Reykja­vík skipu­lags­valdið eða grafa undan henni með öðrum hætti. Ég er eig­in­lega bara stoltur af Reyk­vík­ingum að sýna slíkum til­burðum fing­ur­inn með jafn afger­andi hætt­i."

Stefán Einar Stef­áns­son, blaða­maður á Morg­un­blað­inu og fyrrum for­maður VR, bendir í ummælum við færsl­una á nýlega könnun sem sýni  að átta af hverjum tíu aðspurðra séu and­víg því að neyð­ar­braut á Reykja­vík­ur­flug­velli verði lok­að. Sú könnun var unnin fyrir sam­tökin Hjartað í Vatns­mýr­inni sem berst gegn lokun Reykja­vík­ur­flug­vall­ar. Egill Helga­son, dag­skrár­gerð­ar­maður og þjóð­málarýn­ir, segir á sama stað að sú könnun sé ekki mark­tæk þar sem spurn­ingin sem beint var til svar­enda hafi verið gild­is­hlað­in.

Fjór­flokk­ur­inn í sögu­legri lægð



Í nýrri könnun MMR sem birt var í dag kom fram að Píratar mæl­ast með 32 pró­senta fylg­i. ­Flokk­ur­inn mælist langstærst­ur, með um tíu pró­sentum meira fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem mælist með tæp 22 pró­sent.

Aðrir flokkar eru með um og undir tíu pró­senta fylgi sam­kvæmt könn­un­inni. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 10,8 pró­senta fylgi eins og Vinstri græn, Sam­fylk­ingin mælist með 10,7 pró­sent og Björt fram­tíð 8,3 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None