Gunnar Bragi ítrekar stuðning Íslands við þvingunaraðgerðir gegn Rússum

h_51164586-1.jpg
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra ítrek­aði í dag stuðn­ing Íslands við þving­un­ar­að­gerðir gegn Rússum á fundi utan­rík­is­ráð­herra Norð­ur­landa og Eystra­salts­ríkja sem hald­inn var í Kaup­manna­höfn. Á fund­inum útskýrði Gunnar Bragi jafn­framt þá stöðu sem blasir við íslenskum sjáv­ar­út­vegi eftir að Rúss­land bætti Íslandi á lista yfir lönd sem inn­flutn­ings­bann er á.

Í frétt á vef utan­rík­is­s­ráðu­neyt­is­ins segir að Gunnar Bragi hafi einnig fjallað um ­ör­ygg­is­mál í norð­an­verðri Evr­ópu og mik­il­vægi nor­rænnar sam­vinnu í varn­ar­mál­um. Að fundi loknum sam­þykktu ráð­herr­arnir yfir­lýs­ingu um svæð­is­bundin örygg­is­mál.

Þá var leið­toga­fundur um loft­lags­mál, sem fram fer í París í des­em­ber, einnig á dag­skrá fund­ar­ins. Í frétt ráðu­neyt­is­ins segir að ráð­herr­arnir hafi verið "sam­mála um nauð­syn þess að styðja fjár­hags­lega við aðgerðir í þró­un­ar­ríkjum til þess að sporna gegn lofts­lags­breyt­ing­um."

Auglýsing

Af öðrum málum sem rædd voru má nefna mál­efni Grikk­lands, vænt­an­lega þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í Bret­landi um áfram­hald­andi aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, orku­ör­yggi í Evr­ópu, upp­gang hryðju­verka­sam­tak­anna ISIS í Mið­aust­ur­löndum og Norður Afr­íku og ástandið á Mið­jarð­ar­haf­inu.

Ekki ein­ing um afstöðu Gunn­ars Braga



Ekki hefur ríkt ein­ing um þá afstöðu Íslend­inga að styðja aðgerðir gegn Rússum eftir að þeir bættu Íslandi á lista yfir þau lönd sem eru í inn­flutn­ings­banni. Margir, meðal ann­ars stjórn­ar­lið­ar, vilja að Ísland taki við­skipta­hags­muni sjáv­ar­út­vegs fram­yfir stuðn­ing við þving­un­ar­að­gerðir vest­rænna ríkja gegn Rúss­um.

Rúss­nesk stjórn­völd til­kynntu um veru Íslend­inga á list­anum 13. ágúst síð­ast­lið­inn. ­Bannið hefur í för með sér að stærsti mark­aður með upp­sjáv­ar­fisk lok­ast fyrir íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­um. Rússar hafa á síð­ustu árum meðal ann­ars verið stærsti kaup­andi íslensks mak­ríls. Útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands á síð­asta ári nam um 24 millj­örðum króna sam­kvæmt Hag­stof­unni. Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi áætla að undir eðli­legum kring­um­stæðum myndi verð­mæti sjáv­ar­af­urða í ár til Rúss­lands nema um 37 millj­örðum króna. Ekki liggur fyrir hvert tap íslensks sjáv­ar­út­vegs verður vegna banns­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None