Gunnþór mætti horfa meira til hagsmuna heildarinnar

Gunnþór Ingvarsson
Auglýsing

Gunn­þór Ingva­son, for­stjóri Sílda­vinnsl­unnar, segir að stjórn­völd á Íslandi eigi ekki að taka þátt í því að beita Rússa við­skipta­þving­un­um, heldur gæta hlut­leysis í mál­inu. Utan­rík­is­ráð­herra, og hans fólk, eigi að ein­beita sér að því að gæta hags­muna íslenskra fyr­ir­tækja. Afstaða til deilu­efna sem tengj­ast Rússum eigi að ráð­ast af þeim.

Þetta er nokkuð merki­leg grein­ing hjá Gunn­þóri, á utan­rík­is­póli­tík Íslands. Banda­ríkja­menn, Evr­ópu­sam­band­ið, NATO, og raunar flest þróuð ríki heims­ins, hafa tek­ið ­saman höndum um að beita Rússa við­skipta­þving­unum vegna beit­ingu hern­aðar gagn­vart full­valda ríki, þvert á alþjóða­lög. Ang­ela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, hefur sagt Vladímir Pútín, for­seta Rúss­lands, veru­leikafirrtan og hættu­legan mann. Undir það hafa fleiri þjóð­ar­leið­togar tek­ið.

Nú er ekki gott að segja, hvað hefur farið á milli þjóð­ar­leið­toga heims­ins á per­sónu­legum fundum þeirra, en ein­hverra hluta vegna eru flest þróuð ríki heims­ins, í gegnum alþjóða­sam­starf, að beita Rússa þving­unum og þeim er dauð­ans alvara. Eitt liggur fyr­ir. Það er að óbreyttir borg­arar hafa látið lífið í átökum þar sem rúss­nesk stjórn­völd hafa verið að beita mætti sínum með hern­aði.

Auglýsing

Gunn­þór verður að horfast í aug­u við þessa stöðu með öðrum gler­augum en þeim, sem aðeins gefa sýn út frá hags­munum Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Þrátt fyrir að efna­hagur Síld­ar­vinnsl­unnar sé glæsi­leg­ur, og að fyr­ir­tækið hafi verið vel rekið ára­tugum sam­an, þá yrði það mik­ill póli­tískur aum­ingja­skapur að hálfu Íslands, að nálg­ast stöð­una í Rúss­landi - þar sem miklu meiri hags­munir eru undir heldur en mak­ríl­við­skipti við íslensk fyr­ir­tæki - út frá öðru en utan­rík­is­póli­tísku mati, byggt á hags­munum heild­ar­inn­ar.

Í sjálfu sér er það ákveðið sjón­ar­mið, að hugsa alltaf bara um eigin hag. En í utan­rík­is­póli­tísku ­sam­starfi, sem Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hefur talað ítrekað fyrir þegar kemur að stöðu mála í Úkra­ínu, þá er útgangs­punkt­ur­inn sá að taka afstöðu til mála út frá hags­munum heild­ar­inn­ar.

Gunn­þór mætti alveg gefa öðrum hags­munum en þeim sem tengj­ast Síld­ar­vinnsl­unni meiri gaum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None