Gylfi Arnbjörnsson segir formann SFR "stinga hausnum í sandinn"

gylfiarnbjorns.jpg
Auglýsing

Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), segir Árna Stefán Jóns­son, for­mann SFR stétt­ar­fé­lags "st­inga hausnum í sand­inn". Ástæðan eru ummæli Árna Stef­áns í fréttum RÚV í gær þar sem hann sagði vanda­málið varð­andi verð­bólgu og óstöð­ug­leika ekki vera kröfur opin­berra starfs­manna heldur "það sem Sam­tök atvinnu­lífs­ins og ASÍ gerðu í sínum kjara­samn­ing­um, þeir settu fram ákvæði sem tekur núna gildi í febr­úar 2016, sem efn­is­lega hljóðar upp á það að þeir geta sagt upp sínum samn­ingum til þess að knýja fram þær hækk­anir sem við höfum fengið og þá fer það vænt­an­lega eitt­hvað út í verð­lagið og þá fara hlut­irnir af stað".

Gylfi tjáir sig um ummæli Árna Stef­áns í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag. Þar segir hann að krafa "Árna Stef­áns og félaga er einmitt að fá sömu hækk­anir og BHM og FÍH og læknar og kenn­arar hafa fengið sem í sjálfu sér er skilj­an­legt. Það er hins vegar alger­lega óskilj­an­legt að honum skuli finn­ast rang­læti heims­ins fel­ast í því að aðild­ar­fé­lög ASÍ hafi einmitt ótt­ast að nákvæm­lega þessi stað gæti komið upp sem kom upp á síð­asta ári að ríkið semdi um miklu meiri hækk­anir fyrir þá sem á eftir kæmu. Er nema eðli­legt að aðild­ar­fé­lög ASÍ hafi sett umrætt ákvæði í sína samn­inga!"

Verk­fall félags­manna SFR og þeirra sem eru í Sjúkra­liða­fé­lagi Íslands efst að óbreyttu á morg­un, 15. októ­ber. Um verður að ræða tveggja sól­ar­hringa verk­fall. Þau munu síðan halda áfram annað veifið til 16. nóv­em­ber náist ekki að semja. Eftir það hefst ótíma­bundin vinnu­stöðvun á öllum stofn­unum rík­is­ins.

Auglýsing

Stjórn SFR sendi frá sér ályktun í morgun þar sem hún lýsti veru­legum áhyggjum yfir "því ófremd­ar­á­standi sem nú ríkir vegna aðgerð­ar­leysis stjórn­valda í kjara­deilu félags­manna SFR stétt­ar­fé­lags, Sjúkra­liða­fé­lags Íslands og Land­sam­bands lög­reglu­manna við fjár­mála­ráð­herra fyrir hönd rík­is­ins.".

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None