Hæstiréttur: Interpol-eftirlýsing engin ástæða til frávísunar

sigurdureinarsson.jpg
Auglýsing

Hæsti­réttur tekur afstöðu til þess í dómi sínum hvort eft­ir­lýs­ing emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, á vegum alþjóða­lög­regl­unnar Inter­pol, hafi verið þannig úr garði gerð að hún hafi verið ástæða til frá­vís­unar ákæru á hendur Sig­urði Ein­ars­syni, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manni Kaup­þings. Hæsti­réttur hafnar því alfar­ið, eins og öllum öðrum ástæðum sem Hreiðar Már Sig­urðs­son, fv. for­stjóri, Magnús Guð­munds­son, fv. for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafs­son, sem var stærsti ein­stak­lings­hlut­hafi Kaup­þings fyrir hrun hans, með tæp­lega 10 pró­sent eign­ar­hlut, færðu á borð til þess að freista þess að sanna sak­leysi sitt eða fá mál­inu vísað frá dómi.

Þeir voru allir dæmdir sekir í Al-T­hani mál­inu í Hæsta­rétti í gær. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sig­urður fjögur ár, Ólafur fjögur ár og Magn­ús ­fjögur og hálft ár.

Sig­urð­ur­ var ­eft­ir­lýstur af Inter­pol í maí 2010. Sig­urður er búsettur í Bret­landi  en sér­stakur sak­sókn­ari ákvað að gefa út hand­töku­skipun á hendur Sig­urðar eftir að hann sinnti ekki kalli sér­staks sak­sókn­ara um að mæta í yfir­heyrslu. Sig­urður þrætti fyrir þetta raun­ar, og sagði eft­ir­lýs­ing­una hafa verið til­efn­is­lausa og að hún hefði valdið honum miklu tjóni. Vildi hann að máli gegn honum yrði vísað frá, en allt kom fyrir ekki.

Auglýsing

Í dómn­um, þar sem fjallað er um kröfur um frá­vísun frá Sig­urði vegna eft­ir­lýs­ingar hjá Inter­pol, segir orð­rétt:

„Ákærði Sig­urður hefur reist kröfu um frá­vísun máls­ins frá hér­aðs­dómi sér­stak­lega á því fyrir sitt leyti að lög­regla hafi í nánar til­greindum atriðum staðið rang­lega að verki þegar hún leit­aði eftir og fékk því fram­gengt að alþjóða­lög­reglan gæfi út eft­ir­lýs­ingu á hendur þessum ákærða 11. maí 2010 þegar hann var staddur í Bret­landi, þar sem hann átti heim­il­i. Við flutn­ing máls­ins fyrir Hæsta­rétti hafa rök­semd­ir, sem tengj­ast fram­an­greindu, ekki verið færðar fram með þeim hætti að unnt sé að sjá hvernig hugs­an­legir ann­markar á fram­kvæmd áður­nefndrar eft­ir­lýs­ingar gagn­vart ákærða Sig­urði gætu leitt til þess að vísa ætti máli þessu frá hér­aðs­dómi að því er hann varð­ar. Verður því ekki orðið við aðal­kröfu hans á þessum grunn­i.“

Hæsti­réttur tekur því með engu undir þessa kröfu í dómi sín­um, og finnur ekki að eft­ir­lýs­ingu Inter­pol.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None