Hætt að reyna að fá Íslendinga til Noregs - Reyna frekar að fá útlendinga í íslensk störf

noregur.jpg
Auglýsing

Vinnu­miðl­unin Eures á Íslandi. sem und­an­farin ár hefur staðið fyrir kynn­ingum á lausum störfum í Nor­egi fyrir Íslend­inga, hefur ákveðið að hætta kynn­ing­unum í bili. Í Morg­un­blað­inu er haft eft­ir Þóru Ágústs­dótt­ur, verk­efna­stjóra hjá Eures, að bætt staða á íslenskum vinnu­mark­aði geri það að verkum að ekki sé lengur talin eft­ir­spurn eftir kynn­ing­un­um. Fjár­mun­irnir sem fóru í þær séu nú frekar not­aðir til að þjón­usta íslenska atvinnu­rek­endur við að ráða starfs­fólk að utan.



Þús­undir fóru til Nor­egs eftir hrun



Í og í kjöl­far banka­hruns­ins 2008 misstu fjöl­margir Íslend­ingar atvinnu sína. Þegar Eures hélt starfa­kynn­ingu hér­lendis í nóv­em­ber 2008 mættu til að mynda tvö þús­und manns á hana, en þar voru m.a. kynnt störf í Nor­egi.

Straumur Íslend­inga til Nor­egs hefur verið mjög mik­ill síðan þá. Sam­kvæmt hag­tölum flutt­ust til að mynda 278 Íslend­ingar til Nor­egs árið 2008 en yfir 1.500 árið 2011. Sam­tals voru brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­arar til Nor­egs umfram aðflutta 4.429 frá byrjun árs 2009 og til loka árs 2014.

Lágt heims­mark­aðs­verð á olíu und­an­farin ár hefur hins vegar haft mikil áhrif á atvinnu­lífið í Nor­egi og störfum tengdum olíu­geir­anum þar í landi fækkað mik­ið. Útlit er fyrir að atvinnu­leysi í Nor­egi fari áfram vax­andi. Á Íslandi er hins vegar farið að vanta vinnu­afl, sér­stak­lega í ferða­manna- og bygg­inga­geir­an­um. Því eru íslensk fyr­ir­tæki í auknum mæli farin að flytja inn vinnu­afl í stað þess að Íslend­ingar séu að flytja til ann­arra landa til að vinna.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None