Hætta á að húsaleigubætur fari beint til leigusala

9954417613_8888c2a1ab_z.jpg
Auglýsing

Grein­ing­ar­deild Arion banka ótt­ast að hækkun húsa­leigu­bóta muni að mestu fara út í leigu­verð og breyt­ing­arnar verði þar með eig­endum hús­næðis til hags­bóta en síður leigj­end­um. Í Mark­aðs­punktum grein­ing­ar­deild­ar­innar í dag er því fagnað að stjórn­völd sýni áhuga á umbótum á hús­næð­is­mark­aði. „Þó líst okkur mis­vel á til­lög­urnar og við ótt­umst að þær sem snúa að hækkun bóta og styrkja til íbúða­kaupa muni lítið gagn­ast þeim sem á að hjálpa en fyrst og fremst birt­ast í hærra verði sem kyndir frekar undir verð­bólg­u.“

Grein­ing­ar­deildin listar fyr­ir­hug­aðar aðgerðir stjórn­valda á hús­næð­is­mark­aði og tekur fram að enn liggi ekki fyrir nákvæmar útfærslur eða frum­vörp rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Fyr­ir­hugað er upp­bygg­ing félags­legs íbúða­kerf­is, end­ur­skoðun bygg­inga­reglu­gerða í því skyni að lækka bygg­ing­ar­kostn­að, hækkun húsa­leigu­bóta og stuðn­ingur við kaup á fyrstu fast­eign.

Auglýsing


„Fjórða aðgerðin er stuðn­ingur við kaup á fyrstu íbúð, sem í sjálfu sér er góð hug­mynd, en skatta­af­slætt­irnir sem í stuðn­ingnum felst hafa þó að ein­hverju leyti svipuð áhrif og hækkun bóta,“ segir í Mark­aðs­punktum um áætl­anir um stuðn­ings­að­gerðir við kaup á fyrstu fast­eign. „Einnig setjum við spurn­ing­ar­merki við það hvort skyn­sam­legt sé að færa sér­eigna­sparnað yfir í steypu. Til­gangur slíks sparn­aðar er að eiga eitt­hvað fyrir efri árin, sem er alls ekki að fullu sam­rým­an­legt því að eiga þak yfir höf­uð­ið.“



Þá telur grein­ing­ar­deildin það afar var­huga­vert að horfa frá greiðslu­mati við ákvörðun um lán­veit­ingu, líkt og lagt hefur verið til. Bent er á nýlega reynslu Banda­ríkja­manna, þar sem auð­velt aðgengi að lánsfé setti hús­næð­is­mark­að­inn á hlið­ina. „Þau skulda­vand­ræði sem sköp­uð­ust í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar má að miklu leyti rekja til of mik­illar skuld­setn­ingar ein­stak­linga og heim­ila. Veitt voru hús­næð­is­lán þrátt fyrir tak­mark­aða getu fólks til þess að standa við afborg­anir og voru þau jafn­vel veitt óháð tekj­um, atvinnu og eignum (oft kölluð NINJA lán, þar sem NINJA stendur fyrir no income, no job, no assets), sem setti hús­næð­is­mark­að­inn í Banda­ríkj­unum á hlið­ina og kom alþjóð­legu fjár­málakrepp­unni af stað. Við vonum því að aðgerð­irnar muni ekki beint eða óbeint auka skuld­setn­ingu heim­ila umfram það sem er æski­leg­t.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None