Hagnaður Arion banka nærri tuttugu milljarðar

Höskuldur-Ólafsson2.jpg Höskuldur Ólafsson
Auglýsing

Hagn­aður Arion banka á fyrri helm­ingi árs 2015 nam 19,3 millj­örðum króna, sam­an­borið við 17,4 millj­arða króna hagnað á sama tíma­bili 2014. Afkoman á fyrri hluta árs markast mjög af óreglu­legum liðum, segir í upp­gjörstil­kynn­ingu frá bank­an­um. Skrán­ing og sala bank­ans á fast­eigna­fé­lag­inu Reitum og alþjóð­lega drykkja­fram­leið­and­anum Refresco Ger­ber skipta þar mestu. Hagn­aður af reglu­legri starf­semi nam 8,7 millj­örðum króna sam­an­borið við 6 millj­arða króna á sama tíma­bili 2014.

Hösk­uldur H. Ólafs­son, banka­stjóri Arion banka, segir afkom­una góða. „Á öðrum árs­fjórð­ungi er það fyrst og fremst reglu­leg starf­semi bank­ans sem skilar góðri arð­semi. Þannig heldur starf­semi bank­ans áfram að styrkj­ast og juk­ust þókn­ana­tekj­ur, sem eru fyrst og fremst frá fyr­ir­tækj­um, um 13% á milli ára. Við sjáum einnig áhrif traust­ara efna­hags­á­stands og auk­inna umsvifa í efna­hags­líf­inu í auknum lán­veit­ingaum til fyr­ir­tækja, einkum til fast­eigna­fram­kvæmda, flutn­inga- og ferða­þjón­ustu og sjáv­ar­út­vegs, sem er mjög jákvætt,“ segir hann í til­kynn­ingu.

Arð­semi eigin fjár á fyrstu sex mán­uðum árs­ins var 22,8 pró­sent sam­an­borið við 23,4 pró­sent á sama tíma­bili í fyrra. Arð­semi eigin fjár af reglu­legri starf­semi nam 10,8 pró­sentum á fyrri helm­ingi árs­ins sam­an­borið við 8,1 pró­sent á sama tíma­bili 2014. Heild­ar­eignir námu 974,8 millj­örðum króna sam­an­borið við 933,7 millj­arða króna í árs­lok 2014.

Auglýsing

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans í lok tíma­bils­ins var 23,2 pró­sent en var 26,3 pró­sent í árs­lok 2014. Lækk­unin er einkum til­komin vegna arð­greiðslu að fjár­hæð 12,8 millj­arðar króna og fyr­ir­fram­greiðslu á víkj­andi lánum frá rík­inu að fjár­hæð 20 millj­arðar króna. Hlut­fall eig­in­fjár­þáttar A nam 21,8 pró­sentum og er óbreytt frá árs­lokum 2014.

Enn fremur segir Hösk­uldur í til­kynn­ingu: „Stand­ard & Poor´s hækk­aði nýverið láns­hæf­is­mat Arion banka og er bank­inn nú kom­inn í fjár­fest­ing­ar­flokk sem greiðir aðgengi að erlendum fjár­magns­mörk­uð­um. Hækkun láns­hæf­is­mats­ins kom í kjöl­far þess að Stand­ard & Poor´s hækk­aði láns­hæf­is­mat íslenska rík­is­ins eftir að áform stjórn­valda um afnám fjár­magns­hafta voru kynnt. Það sam­komu­lag sem gert var á milli full­trúa stjórn­valda og hluta kröfu­hafa kveður á um breyt­ingar á efna­hag Arion banka en það hefur legið fyrir um langt skeið að Arion banki er vel í stakk búinn til að takast við slíkar breyt­ingar sam­hliða afnámi hafta.

Eftir að Arion banki fékk for­ræði yfir AFL - spari­sjóði þá hefur það komið okkur á óvart hve alvar­leg staða sjóðs­ins er. Óháðir ráð­gjafar voru fengnir til að meta stóran hluta af lána­safni sjóðs­ins og hefur reynst nauð­syn­legt að færa útlán sjóðs­ins enn frekar nið­ur, eða um rúman 1,7 millj­arð króna á fyrri helm­ingi árs­ins. Hins vegar eru aðrar virð­is­breyt­ingar lána sam­stæð­unnar jákvæðar um sam­bæri­lega upp­hæð og því eru sam­an­lögð áhrif virð­is­breyt­inga útlána á upp­gjör tíma­bils­ins lít­il.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None