Hagnaður Landsbankans nam 12,4 milljörðum

landsbankinn.jpg
Auglýsing

Afkoma Lands­bank­ans var jákvæð um 12,4 millj­arða króna eftir skatta á fyrri helm­ingi árs 2015, sam­an­borið við 14,9 millj­arða hagnað á sama tíma­bili árið 2014.

Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir að áætl­anir stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta muni að öllum lík­indum hafa tölu­verð áhrif á ýmsar stærðir í efna­hags­reikn­ingi bank­ans og að hann sé vel undir það búinn að mæta útflæði inn­lána í eigu slita­bú­anna sem óhjá­kvæmi­lega muni leiða af losun fjár­magns­hafta.

Hreinar vaxta­tekjur voru 16,2 millj­arðar króna og hækka um 6% á milli tíma­bila. Hreinar þjón­ustu­tekjur námu 3,4 millj­örðum króna og hækka um 16% frá sama tíma­bili árið áður. Virð­is­breyt­ingar útlána lækka um 9,6 millj­arða króna á milli ára, en hagn­aður af hluta­bréfum hækkar á sama tíma um tæpa 5 millj­arða. Arð­semi eigin fjár á tíma­bil­inu var 10,4% á árs­grund­velli sam­an­borið við 12,8% á sama tíma­bili árið áður.

Auglýsing

Upp­gjör Lands­bank­ans fyrir fyrri helm­ing árs var birt í dag.

Stein­þór Páls­son, banka­stjóri segir í til­kynn­ingu: „Af­koma Lands­bank­ans fyrstu sex mán­uði árs­ins er með ágæt­um, tekju­sam­setn­ingin betri en áður og fjár­hags­staðan er traust. Bank­inn hefur notið góðs af hag­stæðri þróun í efna­hags­líf­inu og á fjár­mála­mörk­uðum og við­skipti hafa verið að aukast umtals­vert.  Mark­aðs­hlut­deild bank­ans í útlána- og inn­lána­starf­semi og í mark­aðsvið­skiptum heldur áfram að aukast.  Sam­kvæmt mæl­ingum Gallup í júní mælist Lands­bank­inn með mestu mark­aðs­hlut­deild­ina á ein­stak­lings­mark­aði, eða 35,1% og hefur aldrei mælst hærri.  Þetta sýnir að við­skipta­vinir kunna að meta það sem Lands­bank­inn er að ger­a.“

Kostn­að­ar­hlut­fall lækkar umtals­vert, er 44,8% á fyrri helm­ingi árs­ins en var 54,9% á sama tíma­bili árið áður. Rekstr­ar­kostn­aður hækkar um 2% milli ára, en betri tekju­sam­setn­ing skýrir lækkun kostn­að­ar­hlut­falls­ins. Inn­lán frá við­skipta­vinum hafa auk­ist um 13% á árinu og útlán um 6% en hluta þess má rekja til sam­runa við Spari­sjóð Vest­manna­eyja í lok mars, en rekstr­ar­á­hrifa hans gætir nú í upp­gjöri bank­ans í fyrsta sinn. Á fyrri helm­ingi árs­ins námu ný íbúða­lán 31,7 millj­arði króna, en voru 21,5 millj­arður króna á sama tíma á síð­asta ári. Lands­bank­inn var með mesta mark­aðs­hlut­deild í bæði hluta­bréfa- og skulda­bréfa­við­skiptum í Kaup­höll á fyrri hluta árs.

Í lok mars sam­ein­að­ist Spari­sjóður Vest­manna­eyja við Lands­bank­ann.  Sam­þætt­ing starf­sem­innar hefur gengið vel og leggur bank­inn áherslu á að veita öfl­uga fjár­mála­þjón­ustu á starfs­svæðum spari­sjóðs­ins til hags­bóta fyrir íbúa og atvinnu­líf, segir í upp­gjörstil­kynn­ingu bank­ans.

Hálfs­árs­upp­gjör Lands­bank­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None