Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að bjóða sig fram aftur til varaformanns flokksins. Hún tilkynnti þetta með bréfi til sjálfstæðismanna nú í kvöld, og birti það svo á Facebook-síðu sinni.
Hanna Birna segist þakklát fyrir hvatningu sem hún hafi fengið frá mörgum um að sækjast eftir endurkjöri. „Ég hefði með stolti og ánægju verið reiðubúin að gegna áfram embætti varaformanns. Ég hefði líka með stolti og ánægju tekið þátt í málefnalegri kosningu og tekið hverri þeirri niðurstöðu sem á landsfundi hefði orðið. En þegar nú blasir við að eina ferðina enn á að stilla ákvörðunum er mig varða upp sem einhverju uppgjöri við hið svokallaða lekamál þá finn ég sterkt að ég hvorki get né vil leggja enn einn slaginn um það mál á flokkinn, mig eða mína.“
Hér að neðan má lesa bréfið sem hún birti í heild sinni.
„Kæru vinir.
Með bréfi þessu vil ég deila með ykkur hvers vegna ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér sem varaformaður á komandi landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Fyrst vil ég nefna hve þakklát ég er og hversu vænt mér þykir um þá hvatningu sem ég hef fengið frá mörgum ykkar um að sækjast eftir endurkjöri. Ég hef hlustað á rökin um að ég standi enn fyrir sömu hugsjónir og þær sem hafa veitt mér öflugan stuðning ykkar; um að hugmyndir mínar um betri stjórnmál eigi síst minna erindi nú; um að ákveðin breidd í forystu flokksins sé mikilvæg og að konur megi ekki enn og aftur hörfa þegar á móti blæs. Þar sem ég er sammála mörgu af þessu og vegna þess hve mikla ástríðu ég hef fyrir þeim verkefnum sem bíða, hef ég hingað til haldið öllu opnu og sagt að ég muni - að öllu óbreyttu - vera í kjöri til varaformanns á komandi landsfundi.
En ég hef líka sagt við mörg ykkar að eftir það sem á undan er gengið, sæki ég ekki sjálfviljug í hörð pólitísk átök í bráð. Ég hefði með stolti og ánægju verið reiðubúin að gegna áfram embætti varaformanns. Ég hefði líka með stolti og ánægju tekið þátt í málefnalegri kosningu og tekið hverri þeirri niðurstöðu sem á landsfundi hefði orðið. En þegar nú blasir við að eina ferðina enn á að stilla ákvörðunum er mig varða upp sem einhverju uppgjöri við hið svokallaða lekamál þá finn ég sterkt að ég hvorki get né vil leggja enn einn slaginn um það mál á flokkinn, mig eða mína. Ég ítreka hversu miður mér þykir að það tveggja ára gamla mál skyldi fara eins og það fór, vildi óska að ég hefði vitað þá það sem ég veit nú - en endurtek að ég reyndi í öllu því ferli að gera það sem ég á hverjum tíma taldi rétt og satt. Ég hef viljað trúa því að flokkurinn og fólkið sem ég hef starfað með og fyrir í um 20 ár myndi meta mig á fleiri mælikvörðum en þeim mistökum sem eðlilega verða í svo erfiðu máli, en upplifi sterkt að það verður ekki gert á þessum landsfundi sem ég tel að verði að snúast um stærri framtíðarmál. Ég hef alltaf talað fyrir því að flokksmenn eigi að geta valið sér fólk til forystu þegar og eins og þeir vilja. Ég vil ekki að mín persóna hafi nokkur áhrif á þann vilja landsfundarfulltrúa að ganga til slíkra kosninga nú, en mun hins vegar standa utan við það kjör að þessu sinni.
Ég ítreka þakkir mínar fyrir samstarf, stuðning og skemmtilegar stundir. Það hafa verið algjör forréttindi að vera varaformaður ykkar og um leið og ég mun sakna þess hlutverks, held ég áfram að nota starfskrafta mína í þágu stefnu okkar og hugsjóna. Ég er því, kæru félagar og vinir, hvergi nærri hætt að leggja mig fram í baráttu fyrir enn betra Íslandi og hlakka til framhaldsins!
Með bestu kveðjum,
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
varaformaður Sjálfstæðisflokksins“