Háskólinn ætlar ekki að afhenda skýrslu sem úrskurðarnefnd hefur sagt honum að afhenda

14131517555_84b7efeb67_z.jpg
Auglýsing

Háskóli Íslands ætlar ekki að afhenda skýrslu sem varðar vinnu­um­hverfi Við­skipta­fræði­deildar skól­ans, þrátt fyrir að úrskurða­nefnd um upp­lýs­inga­mál hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að skól­inn eigi að afhenda hana. Þess í stað mun Háskól­inn láta reyna á málið fyrir dóm­stólum og óska eftir flýti­með­ferð til þess. Flýti­með­ferð fyrir dóm­stólum er raunar for­senda þess að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál frestar rétt­ar­á­hrifum ákvörð­unar sinn­ar. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Félags­vís­inda­sviði Háskóla Íslands.

Í yfir­lýs­ing­unni seg­ir: „Á haust­mán­uðum 2013 fékk Félags­vís­inda­svið Háskóla Íslands Líf og sál sál­fræði­stofu til að gera vinnu­staða­grein­ingu innan Við­skipta­fræði­deild­ar. Til­gang­ur­inn var að greina sam­skipti innan deild­ar­innar og gera til­lögur um aðgerð­ir. Grein­ing­unni var skilað í nóv­em­ber 2013 og strax ráð­ist í þær aðgerðir sem þar voru lagðar til.

Í fram­haldi af kæru til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál hefur nefndin úrskurðað að háskól­anum beri að afhenda þessa skýrslu. Því getur Félags­vís­inda­svið ekki unað. Vinnu­staða­grein­ingar sem þessi hafa reynst opin­berum stofn­unum vel við að leysa ýmis mál sem tengj­ast starfs­um­hverfi og byggja upp við­kom­andi starf­semi til fram­tíð­ar. Til að slíkar grein­ingar komi að gagni er trún­aður lyk­il­at­riði. Starfs­menn verða að geta tjáð sig opin­skátt um það sem þeir telja að betur megi fara á vinnu­staðnum án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því hver fái aðgang að upp­lýs­ing­unum eða hvernig þær verði not­að­ar. Af hálfu Lífs og sálar ehf. var lögð áhersla á að um skýrsl­una ríkti trún­aður enda voru við­töl við starfs­menn tekin í trún­aði. Var skýrslan því sér­stak­lega merkt sem trún­að­ar­mál og fengu þeir starfs­menn sem rætt var við ekki aðgang að henni heldur aðeins yfir­stjórn­end­ur. Það væri því sér­kenni­leg aðstaða ef túlkun laga væri þannig að aðilar utan Háskóla Íslands ættu rétt á að fá aðgang að þess­ari skýrslu en ekki þeir starfs­menn innan háskól­ans sem rætt var við. Vinnu­staða­grein­ingar sem þessi yrðu gagns­laus verk­færi ef trún­aður ríkti ekki um sam­töl við ein­stak­linga og nið­ur­stöð­urnar í heild.

Auglýsing

Félags­vís­inda­svið telur þess vegna mik­il­vægt að fá end­an­lega úr því skorið hvort afhenda þurfi slík gögn. Lög gera ráð fyrir að leyst verði úr málum sem þessum fyrir dóm­stól­um. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur sam­þykkt að fresta rétt­ar­á­hrifum úrskurðar síns um afhend­ingu skýrsl­unnar með því skil­yrði að háskól­inn beri málið undir dóm­stóla og óski eftir flýti­með­ferð. Af hálfu Háskóla Íslands hefur því verið ákveðið að höfða mál til að freista þess að fá hnekkt úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál um afhend­ingu skýrsl­unn­ar.“

Undir yfir­lýs­ing­una skrifar Daði Már Krist­ó­fers­son, for­seti Félags­vís­inda­sviðs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None