Heilbrigðis­kerfið: Landflótti heilbrigðisstarfsmanna

doctor-2605594b.jpg
Auglýsing

Það hafa verið miklir umbrots­tímar í íslensku sam­fé­lagi und­an­farin ár. Margt hefur áunn­ist í bar­átt­unni við að end­ur­reisa þar og efla. Í dag er til að mynda góður hag­vöxt­ur, lítil verð­bólga og lítið atvinnu­leysi. Ákveðnir atvinnu­veg­ir, sér í lagi sjáv­ar­út­vegur og ferða­þjón­usta, eru í miklum sókn­ar­ham.

Ísland stendur hins vegar enn frammi fyrir risa­vöxnum vanda­málum sem nauð­syn­legt verður að takast á við í allra nán­ustu fram­tíð. Þeirri bar­áttu verður ekki frestað mikið leng­ur. Á þessum tíma­mótum Kjarn­ans þótti rit­stjórn hans rétt að útlista þau fjögur helstu. Þau eru glíman við fjár­magns­höft, breyt­ingar á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu, skjald­borg um heil­brigð­is­kerfið og staða Íslands í alþjóða­sam­fé­lag­inu. Hér að neðan verður fjallað um heil­brigð­is­kerf­ið.

End­ur­nýjun lækna er ekki að eiga sér stað



Stjórn­valda bíður mjög erfitt verk­efni við að standa vörð um íslenska heil­brigð­is­kerf­ið. Við blasir krísu­á­stand. Tækju­bún­aður er ann­að­hvort úreltur eða ekki til, hús­næði heil­brigð­is­stofn­anna, og sér­stak­lega Land­spít­al­ans, er óboð­legt fyrir slíka starf­semi og skapar mikið óhag­ræði, álag á starfs­fólk er gríð­ar­legt og sam­keppni um það mik­il. Þegar gríð­ar­­­legur nið­ur­skurður bæt­ist ofan á þetta ástand má ljóst vera að sprung­urnar stækka ansi hratt. Og því fag­fólki sem vill vinna við þessum aðstæður fækkar hratt og örugg­lega.

Fara til Nor­egs og koma aldrei aftur



Frá árinu 2008 hafa vel á fimmta hund­ruð íslenskir hjúkr­un­ar­fræð­ingar fengið leyfi til að starfa í Nor­egi, en þangað hefur straum­ur­inn legið að mestu. Í sam­tali við RÚV í febr­úar síð­ast­liðnum sagði Ólafur G. Skúla­son, for­maður Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, að mark­að­ur­inn í Nor­egi virt­ist botn­laus og gæti auð­veld­lega gleypt hjúkr­un­ar­fræð­i­stétt­ina hér á landi alla. Ástæður þessa flótta eru auð­vitað fyrst og fremst vegna þær að launin eru miklu, miklu, miklu hærri í Nor­egi, og víðar í Skand­in­av­íu, en hér. Auk þess spilar inn í að vinnu­að­stæður eru í flestum til­fellum miklu betri og álagið og mönnun stofn­ana allt önn­ur.

Ástandið innan lækna­stétt­ar­innar er ekk­ert skárra. Það er í raun enn alvar­legra. Fyrr í þessum mán­uði sagði Þor­björn Jóns­son, for­maður Lækna­fé­lags Íslands, frá því í sam­tali við RÚV að nýliðun lækna væri ekki nálægt því að anna lækna­þörf Íslend­inga. Helm­ingi fleiri læknar myndu auk þess fara á eft­ir­laun á næstu fimm árum en fimm árin á und­an. Flestir helstu sér­fræði­læknar þjóð­ar­innar eru að fara á eft­ir­laun á allra næstu árum og ekki virð­ist hægt að manna þær stöður á ný. Nýút­skrif­aðir lækn­ar, og þeir sem eru erlendis í sér­fræði­námi, virð­ast ekki hafa neinn áhuga á því að starfa hér­lend­is. Ástæð­urnar eru nákvæm­lega þær sömu og hjá hjúkr­un­ar­fræð­ing­um: hér eru mun lægri laun, verra starfs­um­hverfi og miklu meira álag.

Auglýsing

Er Ísland vel­ferð­ar­ríki?



Sam­hliða eru Íslend­ingar að eld­ast hratt og álagið á heil­brigð­is­kerfið mun aukast enn frekar á allra næstu árum vegna þessa. Eldra fólk glímir enda við fleiri heil­brigðiskvilla en það yngra. Við­brögðin við þessu ástandi hafa fyrst og síð­ast verið þau að auka kostn­að­ar­þátt­töku sjúk­linga. Þegar horft er til þeirra vanda­mála sem Ísland stendur frammi fyrir í líf­eyr­is­sjóða­málum sínum er ljóst að slíkt mun ekki ganga til lengdar ef Ísland vill stæra sig áfram af því að bjóða upp á vel­ferð­ar­kerfi fyrir alla, ekki bara þá sem eiga pen­inga.

Þessi grein er hluti af mun stærri umfjöllun um helstu áskor­anir sem íslenskt sam­fé­lag stendur frammi fyrir sem birt­ist í Kjarn­anum í síð­ustu viku.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None