Helgi Hrafn Gunnarsson, formaður Pírata, segir flokkinn vera stjórntækan. Í viðtali við Viðskiptablaðið í dag segir Helgi Hrafn spurninguna vera áhugaverða, því fólk gefi sér að flokkar séu annað hvort stjórntækir eða ekki. Það sem skipti máli þegar kemur að ríkisstjórn sé að hæft fólks sé innan flokka. „Það eru núna til staðar mjög óhæfir ráðherrar, og mjög hæfir ráðherrar líka,“ segir hann í viðtalinu. Helgi Hrafn nefnir þrjá ráðherra sérstaklega sem honum finnst hæfir í starfi. Nokkrir aðrir ráðherra séu aftur á móti ekki með á nótunum.
„Ég er til dæmis alveg algjörlega blygðunarlaust aðdáandi Ólafar Nordal, sem mér finnst frábær ráðherra. Illuga Gunnarssyni er ég oft ósammála, en ég ber virðingu fyrir því hvernig hann nálgast suma hluti. Bjarni Benediktsson er mjög góður, þótt ég sé mjög ósammála hans nálgun í mörgu eins og efnahagsmálum – eða stundum er ég sammála honum – en hann sýnir þinginu virðingu, hann er góður ráðherra í sjálfu sér, ef maður er sammála honum. Svo eru alveg til ráðherrar sem eru bara ekkert með á nótunum. Þannig að þetta er ekkert spurning um flokka að mínu mati, þetta er bara spurning um að fá rétta fólkið í starfið.“
Spurður um hvaða ráðherra hann sé að vísa til nefnir Helgi Hrafn forsætisráðherra sérstaklega, Sigmund Davíð Gunnlaugsson.
„Sem mér er svona illa við? Mér leiðist nú að tala illa um fólk en ég skal alveg segja þér hreinskilnislega að það hvernig hæstvirtur forsætisráðherra kemur fram við þingið er óþolandi og óbjóðandi. Ég er eiginlega algjörlega hættur að reyna að sykra það eitthvað. Hvernig þessi forsætisráðherra kemur fram við þingið er bara ekki í lagi, við eigum ekki að láta eins og það sé í lagi.“