Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest sekt á Valitor vegna alvarlegra samkeppnislagabrota. Dómur þess efnis var kveðinn upp í dag. Sektargreiðsla var hins vegar lækkuð úr 500 milljónum í 400 milljónir.
Í apríl 2013 sektaði Samkeppniseftirlitið Valitor hf. um 500 milljónir króna fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu og brot á skilyrðum fyrri ákvörðunar eftirlitsins. Var félagið talið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Háttsemi Valitors fólst í því að fyrirtækið verðlagði þjónustu sína í færsluhirðingu vegna debetkorta undir breytilegum kostnaði á árunum 2007 og 2008. „Með þessari undirverðlagningu var félagið líklegra til að fá samninga við söluaðila um færsluhirðingu vegna kreditkorta sem talin er arðsamari þjónusta. Var umfang þessarar undirverðlagningar verulegt. Fól háttsemin einnig í sér brot á 54. gr. EES-samningsins,“ segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.
Samkeppniseftirlitið komst einnig að þeirri niðurstöðu að Valitor hefði brotið gegn tveimur skilyrðum sem félagið hafði skuldbundið sig til að hlíta með sátt við Samkeppniseftirlitið sem birt var í ákvörðun nr. 4/2008. Í brotinu fólst m.a. að Valitor misnotaði trúnaðarupplýsingar um söluaðila í viðskiptum við keppinauta sína í færsluhirðingu sem félagið hafði aðgang að vegna stöðu sinnar í útgáfu VISA greiðslukorta hér á landi.
Valitor kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem staðfesti hana í heild sinni í október 2013. Var það mat nefndarinnar að misnotkun Valitors á markaðsráðandi stöðu sinni og brot á fyrrgreindu skilyrði í eldri ákvörðun séu alvarleg. Var vísað til þess að notkun greiðslukorta í viðskiptum með vöru og þjónustu sé mjög almenn og víðtæk hér á landi. Í ljósi þessa og mikilvægis þessa markaðar fyrir neytendur og atvinnulífið skipti miklu að öll verðmyndun sé eðlileg og minni keppinautar séu ekki með óeðlilegum hætti hindraðir í að veita samkeppnislegt aðhald.
Valitor skaut úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála til Héraðsdóms Reykjavíkur sem kvað upp dóm í dag í málinu, eins og áður segir. Er þar komist að þeirri niðurstöðu að Valitor hafi af „ásetningi framið alvarleg brot“ á samkeppnislögum. Hafi brotin að auki verið ítrekuð að hluta til. Héraðsdómur taldi hins vegar að brot Valitors hefðu tekið til skemmra tímabils en lagt var til grundvallar hjá áfrýjunarnefnd. Sökum þessa var sekt lækkuð og hún ákveðin 400 milljónir króna. Er það hæsta sekt sem dómstólar hafa dæmt í málum sem varða misnotkun á markaðsráðandi stöðu.