Hjálmar Gíslason, stofnandi Datamarket og stjórnarformaður Kjarnans, fékk í dag UT verðlaun Ský 2015 á UT messunni í Hörpu. Datamarket var selt til fyrirtækisins Qlik í fyrra fyrir um 1.440 milljónir króna. Hjálmar starfar nú hjá Qlik.
Í rökstuðningi dómnefndar verðlaunanna kemur fram að Hjálmar sé góð fyrirmynd og hafi mikla þekkingu á upplýsingatækni. „Hann er framsýnn og hefur sterka tilfinningu og framtíðarsýn fyrir tækni og þróun. Með sölu á Datamarket til Qlik sýndi Hjálmar að hann er ekki aðeins frábær frumkvöðull sem fundið hefur fundið hugmyndum sínum farveg, heldur er hann einn af allt of fáum sem hafa kunnáttu, þrautseigju og getu til að fylgja hugmynd eftir alla leið til enda með góðri sölu til stærra og öflugra fyrirtækis og þannig tryggt enn betur framgang hennar,“ segir í rökstuðningnum, samkvæmt frásögn Viðskiptablaðsins.
Hjálmar er formaður stjórnar Kjarnans, en með honum í stjórninni eru Vilhjálmur Þorsteinsson, Guðrún Inga Ingólfsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir.
Hér að neðan má sjá Hjálmar þakka fyrir verðlaunin sem hann fékk í dag.
https://vimeo.com/118582189