Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur slitið viðræðum við samninganefnd ríkisins. Þetta var gert klukkan 17:30 í dag.
„Það var ljóst á fundinum í dag að það er lítill vilji hjá ríkinu til þess að semja við hjúkrunarfræðinga. Hvorki virðist vera vilji til þess að leiðrétta laun þeirra og gera þau sambærileg við laun annarra háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna né að leiðrétta kynbundinn launamun,“ segir í fréttatilkynningu frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Hjúkrunarfræðingar hófu ótímabundið verkfall fyrr í vikunni og ljóst er að það heldur áfram. Félag hjúkrunarfræðinga segir ómögulegt að segja til um hvenær næsti samningafundur verði boðaður.
Auglýsing