Hluthafarnir geta vel stutt við félögin - Hvað ákveða þeir að gera?

kjarninn_makrill.jpg
Auglýsing

Við­skipta­bann Rússa, sem nú teygir anga sína til Íslands, er orðið að miklu hita­máli á hinu póli­tíska sviði. Það kemur ekki mikið á óvart, þar sem miklir við­skipta­hags­munir eru í húfi, eða sem nema um 30 millj­örðum á ári, og eru nær öllu leyti tengdir stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins.

Eins og fram kom í gær, á þessum vett­vangi, þá yrði það frá­leit ráð­stöfum á pen­ingum rík­is­sjóðs ef þeir yrði not­aðir til þess að bæta sjáv­ar­út­vegnum upp tap­ið. Sveiflur á mörk­uð­um, og aðrir áhættu­þætt­ir, hafa áður gert sjáv­ar­út­vegnum lífið leitt og í einka­rétt­ar­legum við­skiptum verða hlut­haf­arnir að eiga við það.

En það verður ekki lítið gert úr því að þetta er mikið áfall, og mörg störf í landi gætu horfið vegna þessa banns, einkum ef það verður lengi í gildi.

Auglýsing

Á und­an­förnum árum hefur sala á sjáv­ar­af­urðum til Rúss­lands og Aust­ur-­Evr­ópa lagt grunn­inn að bestu upp­gjörum sem sést hafa í íslenskum sjáv­ar­út­vegi nokkru sinni. Hlut­hafar fyr­ir­tækj­anna hafa hagn­ast veru­lega þessu góð­æri, og hafa arð­greiðslur numið millj­örðum á hverju ári, Rekstur Síld­ar­vinnsl­unnar er gott dæmi um þetta góða gengi. Und­an­farin fimm ár hefur félagið hagn­ast um millj­arða á hverju ári, líkt og fleiri fyr­ir­tæki.

Í ljósi hinnar erf­iðu stöðu sem uppi er ættu hlut­hafar fyr­ir­tækj­anna vel að geta stutt við félögin í gegnum erfitt árferði og einnig farið var­lega í að segja upp starfs­fólki. Hinn 19. ágúst næst­kom­andi heldur Síld­ar­vinnslan aðal­fund sinn á Hót­el Eg­ils­búð, Nes­kaup­stað. Liður númer 3 á dag­skrá fund­ar­ins er ákvörðun um greiðslu arðs vegna rekst­urs­ins í fyrra. Spenn­andi verður að sjá hvort hlut­haf­arnir ákveða að taka pen­ing úr félag­inu, eða hvort þeir ákveða að halda þeim eftir í félag­inu í ljósi þeirra miklu erf­ið­leika sem inn­flutn­ings­bann Rússa getur skapað fyrir rekstur félags­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None