Höfðu áhyggjur af rekstrargrundvelli lögreglu á Austurlandi

9951399013-d1d9280f9b-o.jpg
Auglýsing

Sveita­fé­lagið Horna­fjörður var sett undir lög­reglu­um­dæmi Aust­ur­lands vegna þess að sveita­stjórn­ar- og lög­reglu­menn þar höfðu áhyggjur af því að rekst­ar­grund­völlur lög­regl­unnar þar væri veik­ur. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, tók ákvörð­un­ina og til­kynnt var um hana á sama tíma og hann lét af störfum sem dóms­mála­ráð­herra.­Með henni færð­ust lög­reglu­mál Horna­fjarð­ar, og það fjár­magn sem þeim fylgir, yfir í kjör­dæmi Sig­mundar þvert á vilja Horn­firð­inga.

Að sögn Jóhann­esar Þór Skúla­son­ar, aðstoð­ar­manns Sig­mundar Dav­íðs hafði rekstr­ar­grund­völlur lög­regl­unnar á Aust­ur­landi ekki „verið nógu sterk­ur. Að mati heima­manna skipti það miklu máli að það sam­starf sem hefur verið milli lög­reglu­emb­ætta á Höfn og á Aust­ur­landi sé skoðað nánar og rekstr­ar­for­send­urnar end­ur­metn­ar“. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Líkt og Kjarn­inn greindi frá á föstu­dag var það síð­asta verk Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, for­sæt­is­ráð­herra, sem dóms­mála­ráð­herra var að setja nýja reglu­gerð um lög­reglu­um­dæmi lög­reglu­stjóra, þar sem sveit­ar­fé­lagið Horna­fjörður telst nú til umdæmis lög­reglu­stjór­ans á Aust­ur­landi. Með ákvörðun sinni færði þáver­andi dóms­mála­ráð­herra lög­regl­una á Höfn úr Suð­ur­kjör­dæmi yfir í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem vill svo til að er hans kjör­dæmi.

Auglýsing

Lög­reglu­yf­ir­völdum og sveit­ar­stjórn­ar­mönnum barst til­kynn­ing um reglu­gerð­ina í tölvu­pósti klukkan rétt rúm­lega eitt á fimmtu­dag, en þá var nýhaf­inn rík­is­ráðs­fundur á Bessa­stöðum þar sem Ólöf Nor­dal tók form­lega við ­sem nýr innanríkisráðherra

Lög­reglu­yf­ir­völdum og sveit­ar­stjórn­ar­mönnum barst til­kynn­ing um reglu­gerð­ina í tölvu­pósti klukkan rétt rúm­lega eitt á fimmtu­dag, en þá var nýhaf­inn rík­is­ráðs­fundur á Bessa­stöðum þar sem Ólöf Nor­dal tók form­lega við ­sem nýr inn­an­rík­is­ráð­herra. Sam­hliða því færð­ust dóms­málin frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu aftur yfir í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­ið.

Mikil óánægja með ákvörð­un­ina



Sveit­ar­stjórn­ar­menn á Horna­firði eru æfir vegna reglu­gerð­ar­inn­ar, og Björn Ingi Jóns­son, bæj­ar­stjóri á Horn­ar­firði, sendi þing­mönnum og nýskip­uðum dóms­mála­ráð­herra harð­ort bréf vegna máls­ins.Í nið­ur­lagi bréfs­ins, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, seg­ir:„Þess vegna spyr ég HVAÐ ER AÐ GER­AST HJÁ YKK­UR?!  Ég óska eftir því að þið beitið ykkur í því að þessi ákvörðun verði end­ur­skoðuð og að unnið verð áfram í þá átt sem hér hefur verið lýst.“

Unnur Brá Kon­ráðs­dótt­ir, for­maður alls­herj­ar­nefndar Alþingis og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði við fjöl­miðla um helg­ina að það ætti að draga reglu­gerð Sig­mundar til baka. Ólöf Nor­dal, nýr inn­an­rík­is­ráð­herra, sagði í fréttum Stöðvar 2 um helg­ina að hún ætli að fara yfir mál­ið.

Í frétt Frétta­blaðs­ins í morgun kom fram að ekki hefði náðst í Sig­mund Davíð vegna henn­ar, þar sem hann var staddur erlend­is. Sig­mundur Davíð hefur ekki tjáð sig um málið frá því að það komst í hámæli á föstu­dag.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None