Icelandair Hotels, dótturfélag Icelandair Group, og Lindarvatn ehf. skrifuðu í dag undir leigusamning til 25 ára um rekstur hágæðahótels í fyrrum höfuðstöðvum Landssímans við Austurvöll. Nýja hótelið, sem enn hefur ekki hlotið nafn, verður 160 herbergja en ekki er enn ákveðið undir hvaða vörumerki rekstur hótelsins mun falla. Áætlað er að hótelið hefji rekstur sumarið 2017.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar frá Icelandair Group.
Samhliða undirritun leigusamningsins gekk Icelandair group frá kaupum á 50 prósent eignarhlut í Landarvatni, félaginu sem á fasteignina auk annarra eigna á reitnum. Samtals eru þær eignur um fimmtán þúsund fermetrar en gert er ráð fyrir að hótelið verði um ellefu þúsund fermetrar að stærð.
„Uppbygging hótela hér á landi hefur verið áberandi á undanförnum misserum, en fjölgun hótelherbergja í Reykjavík hefur engu að síður ekki náð að halda í við aukinn fjölda ferðamanna til borgarinnar. Icelandair Hotels standa í framkvæmdum víðar í Reykjavík, en það er markviss stefna félagsins að auka framboð hágæða gistirýmis í borginni. Slíkt er meðal annars nauðsynlegt til þess að borgin geti markaðssett sig sem ráðstefnuborg.“