Hríðskotabyssurnar 150 komu frá norska hernum

000-Par6523717.jpg
Auglýsing

Hríð­skota­byss­urnar 150 sem íslenska lög­reglan fékk gef­ins frá Nor­egi, komu frá norska hern­um, ekki norsku lög­regl­unni. Þetta stað­festir Jón Bjart­marz, yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, í sam­tali við Kjarn­ann. Norska lög­reglan sótt­ist eftir því að fá byss­urnar sem sendar voru til Íslands, en fékk ekki.

DV greindi frá því í gær­morgun að íslenska lög­reglan hefði keypt fjöl­margar MP5-hríð­skota­byssur frá Nor­egi. Rík­is­lög­reglu­stjóri og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, dóms­mála­ráð­herra, hafa neitað því að byss­urnar hafi verið keypt­ar. Jóhannes Þór Skúla­son, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íðs, sagði til að mynda að byss­urnar hafi verið gjöf  frá Norð­mönn­um. Í fjöl­miðlum í gær var því haldið fram að byss­urnar hafi komið frá norsku lög­regl­unni, sem hafi verið að afleggja MP5-­byss­un­um.

Norska lög­reglan vill fá byss­urnar



Það er ekki rétt því það er norski her­inn sem er að afleggja byss­unum til að taka upp MP7-hríð­skota­byss­ur. Þetta stað­festir Jón Bjart­marz, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, í sam­tali við Kjarn­ann. Í frétt norska dag­blaðs­ins Ver­dens Gang frá því í júlí kemur fram að norska lög­reglan vilji njóta  for­gangs þegar kemur að því að yfir­taka aflögð vopn hjá norska hern­um. Þörf hennar fyrir vopn hafi auk­ist mikið á und­an­förnum árum.

Í frétt­inni er haft eftir Kaare Songstad, yfir­manni hjá norsku lög­regl­unni, að lög­reglan viti að her­inn eigi fullt af MP5-hríð­skota­bysum á lag­er. „Hann þarf þær ekki, en við þurfum þær. Þess vegna óskum við eftir að taka yfir stóran hluta af þessum vopn­um“.

Auglýsing

60 byssur seldar til íslensku Land­helg­is­gæsl­unn­ar?



Í sömu frétt er sagt frá því að mikil eft­ir­spurn sé víða að eftir hríð­skota­byss­un­um. Þar er því einnig haldið fram að norski her­inn hafi selt 60 MP5-hríð­skota­byssur til íslensku Land­helg­is­gæsl­unn­ar. Jón Bjart­marz sagði í Kast­ljósi í gær að land­helg­is­gæslan hafi haft milli­göngu um að íslenska lög­reglan fékk vopn­inn frá Norð­mönn­um. Þegar Kjarn­inn bar frétt­ina undir Jón og hvort Land­helg­is­gæslan hefði keypt byss­urn­ar, líkt og haldið er þar fram, seg­ist Jón ekki geta svarað fyrir hönd Lands­helg­is­gæsl­unn­ar. Ekki hefur náðst í Georg Kr. Lár­us­son, for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unn­ar, í morg­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None