Húsleitir framkvæmdar á heimilum Hlínar og Malínar - tölvur og símar gerð upptæk

logreglan-net000002.jpg
Auglýsing

Lög­regla leit­aði á heim­ilum Hlínar Ein­ars­dóttur og Malínar Brand í kjöl­far þess að þær voru hand­teknar fyrir að reyna að kúga fé út úr Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra. Í hús­leit­unum var sönn­un­ar­gagna leitað og símar og tölvur í eigu þeirra gerð upp­tæk. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Syst­urnar voru hand­teknar sunnan við Valla­hverfi í Hafn­ar­firði á föstu­dag þegar þær ætl­uðu að vitja þess fjár sem kraf­ist hafði verið að Sig­mundur Davíð greiddi til að koma í veg fyrir að upp­lýs­ingar sem áttu að geta komið honum illa yrðu gerðar opin­ber­ar. Sam­kvæmt fram komnum upp­lýs­ingum var sent bréf, stílað á eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra, á heim­ili þeirra á fimmtu­dag og þar sagt að ef nokkrar millj­ónir króna yrðu ekki greiddar myndu upp­lýs­ing­arnar fara til fjöl­miðla.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans snér­ust umræddar upp­lýs­ingar um að for­sæt­is­ráð­herra ætti að hafa beitt sér með ein­hverjum hætti fyrir því að Björn Ingi Hrafns­son, útgef­andi og aðal­eig­andi DV, myndi fá ein­hvers­konar fjár­hags­lega fyr­ir­greiðslu. Hlín Ein­ars­dóttir er fyrrum sam­býl­is­kona Björns Inga til margra ára en sam­bandi þeirra lauk í fyrra.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann sagð­ist engin fjár­hags­leg tengsl hafa við Björn Inga né hafi hann komið að kaupum Vef­pressunnar á DV í fyrra­haust á neinn hátt. Björn Ingi sagði sömu­leiðis í stöðu­upp­færslu á Face­book að for­sæt­is­ráð­herra ætti ekki hlut í DV.

Malín Brand sagði í við­tali við Vísi í gær að hún hefði ekki skipu­lagt fjár­kúg­un­ina og ekki sent bréfið á eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra. Hennar mis­tök hafi verið að fara með systur sinni í afdrifa­ríka öku­ferð sunnan Valla­hverfis á föstu­dag þar sem þær voru hand­tekn­ar. Játn­ing um aðild að mál­inu liggur fyrir að hálfu beggja systr­anna. Málið telst að mestu upp­lýst en ekki hefur verið tekin ákvörðun um ákæru. Allt að sex ára fang­elsi getur legið við broti sem þessu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None