Íbúðalánavextir hafa ekki verið hærri í tólf ár – Greiðslubyrði upp um 65 prósent frá 2021

Samanlagt borga þeir lántakar sem eru með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum 1,6 milljörðum krónum meira í vaxtakostnað á mánuði nú en þeir gerðu fyrir einu og hálfu ári síðan. Verðtryggð lán eru að sækja í sig veðrið. Markaðurinn er þó að kólna.

Greiðslubyrði þeirra sem keyptu húsnæði með óverðtryggðu láni á breytilegum vöxtum á meðan vextir voru í sögulegu lágmarki hefur hækkað gríðarlega.
Greiðslubyrði þeirra sem keyptu húsnæði með óverðtryggðu láni á breytilegum vöxtum á meðan vextir voru í sögulegu lágmarki hefur hækkað gríðarlega.
Auglýsing

Eftir síð­ustu stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands, þegar vext­irnir voru hækk­aðir í 5,75 pró­sent og höfðu þá hækkað um þrjú pró­sentu­stig frá því í byrjun maí 2022, hafa lán­veit­endur hækkað breyti­lega óverð­tryggða vexti sína. Nú eru lægstu óver­tryggðu vextir sem íslenskir bankar, stærstu lán­veit­end­urnir á mark­aðn­um, bjóða upp á 7,25 til 7,59 pró­sent. Slíkir vextir hafa ekki verið hærri frá árinu 2010, eða í skömmu eftir banka­hrunið þegar enn var verið að end­ur­reisa föllnu bank­ana og íslenskt atvinnu­líf. 

Þessa stöðu má lesa út úr nýrri mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS). 

Þar er einnig fjallað um þau áhrif sem þessar vaxta­hækk­anir hafa haft á greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána. Á fyrri hluta 2021, þegar stýri­vextir voru 0,75 pró­sent, var sá sem var með 50 milljón króna hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum að borga 188.500 krónur af því á mán­uði. Nú, einu og hálfu ári síðar er sú afborgun komin í 311.500 krón­ur. Því borgar þessi lán­taki 123 þús­und krónur meira á mán­uði í afborg­anir af íbúða­lán­inu sínu nú en hann gerði í maí 2021. Það er hækkun upp á 65 pró­sent. 

Kjarn­inn greindi frá því í lok síð­ustu viku að allir stóru íslensku bank­arn­ir: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki, hefðu hækkað vexti sína í kjöl­farið af síð­ustu stýri­vaxta­hækk­un. 

Sam­an­lögð greiðslu­byrði auk­ist um 1,6 millj­arða

Í nýjasta Fjár­­­­­mála­­­stöð­ug­­­leika­­­riti Seðla­­­banka Íslands kom fram að ​​um 28 pró­­­sent útistand­andi fast­­­eigna­lána eru óverð­­­tryggð og með breyt­i­­­legum vöxt­­­um. Sam­an­lögð upp­­­hæð þeirra eru á sjö­unda hund­rað millj­­­arða króna. 

Þá stytt­ist í end­­­ur­­­skoðun á vaxta­­­kjörum fjölda óverð­­­tryggðra lána sem veitt voru á föstum vöxtum til til­­­­­tek­ins tíma, en alls verða vextir á lánum upp á 340 millj­­­arða króna end­­­ur­­­skoð­aðir á árunum 2023 og 2024 og vextir á lánum upp á 250 millj­­­arða króna koma til end­­­ur­­­skoð­unar árið 2025. Þorri þeirra lána eru óverð­­­tryggð.

Auglýsing
HMS ályktar að stabb­inn af breyti­legum óverð­tryggðum lánum sé aðeins minna hlut­fall en Seðla­bank­inn taldi, eða 27 pró­sent. Stofn­unin telur að sam­an­lögð greiðslu­byrði lána á breyti­legum óverð­tryggðum gæti verið um 3,9 millj­arða króna á mán­uði en hefði verið 2,3 millj­arðar króna ef vextir væru enn í lág­marki.

Þess ber þó að gera að óverð­tryggðir vextir eru enn tölu­vert undir verð­bólgu, sem mælist 9,3 pró­sent. Raun­vextir þessa hóps lán­tak­anda eru því nei­kvæðir og eigna­myndun á síð­ast­liðnu ári, þegar hús­næð­is­verð hefur hækkað um 22 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, verið umtals­verð hjá þessum hópi þrátt fyrir að greiðslu­byrðin hafi hækkað mik­ið.

Verð­tryggð lán sækja í sig veðrið

Til­gangur hinna miklu stýri­vaxta­hækk­ana sem Seðla­bank­inn hefur ráð­ist í var að kæla fast­eigna­mark­að­inn, sem var stærsta breytan í síhækk­andi verð­bólgu. Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóri sagði á opnum fundi hjá efna­hags- og við­skipta­nefnd í gær að verð­bólgan hefði senni­lega náð hámarki sínu og að hann von­að­ist til þess að stýri­vaxta­hækk­un­ar­ferl­inu væri nú lok­ið. Grein­ing­ar­að­ilar búast þó ekki við því að vextir fari að lækka á ný fyrr en í fyrsta lagi seint á næsta ári. 

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Ýmis merki eru til staðar um að fast­eigna­mark­að­ur­inn sé að kólna hratt. Í skýrslu HMS kemur fram að fram­boð íbúða hafi auk­ist hratt, við­skiptum fer fækk­andi og sömu­leiðis hefur hlut­fall íbúða sem selst yfir ásettu verði minnk­að. „Nokkuð ljóst er að það eigi eftir að draga veru­lega úr verð­hækk­unum sem hafa ein­kennt fast­eigna­mark­að­inn á und­an­förnum árum en óvíst er hvort að fast­eigna­verð eigi eftir að lækka. Það veltur meðal ann­ars á því að hve miklu leyti heim­ilin eru til­búin til að fjár­magna sig á verð­tryggðum lán­um,“ segir í skýrsl­unni.

Þar kemur auk þess fram að verð­tryggð lán hafa verið að sækja í sig veðr­ið. Heild­ar­upp­hæð hreinna nýrra verð­tryggðra íbúða­lána voru jákvæð í ágúst sem þýðir að ný útlán voru meiri en upp­greiðslur og óreglu­legar inn­á­borg­an­ir. Það er í fyrsta sinn sem það ger­ist síðan í febr­úar 2020.

Íbúða­verð hækk­ar, en hægar

Þjóð­skrá birti tölur í gær sem sýndu að íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,8 pró­sent í sept­em­ber, eftir að hafa lækkað um 0,4 pró­sent mán­uð­inn áður. Það var í fyrsta sinn síðan 2019 sem verðið lækk­aði milli mán­aða. Þriggja mán­aða hækkun íbúða­verðs hefur hins vegar tekið stakka­skipt­um. Það var 9,1 pró­sent í maí en er nú 1,5 pró­sent. 

Nú eru 1.300 íbúðir til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þegar fram­boðið var sem minnst í febr­úar síð­ast­liðnum voru þær innan við 450 tals­ins. Fram­boðið hefur því þre­fald­ast á átta mán­uðum og í skýrslu HMS kemur fram að því í lok júlí hafi það auk­ist um 89 pró­sent. 

Sam­kvæmt íbúða­taln­ingu HMS og Sam­taka iðn­að­ar­ins sem fram­kvæmd var í ágúst og sept­em­ber voru 8.113 íbúðir í bygg­ingu á land­inu öllu sam­an­borið við 7.260 í taln­ing­unni í mars og 6.001 íbúð í sept­em­ber í fyrra. „Aukn­ingin frá því á sama tíma í fyrra nemur því 35,2 pró­sent­um. Mesta aukn­ingin er í Krag­an­um, þ.e. á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir utan Reykja­vík­ur­borg, en þar hefur fjöldi íbúða í bygg­ingu nær tvö­fald­ast frá því á sama tíma fyrir ári. • Ef aðeins er miðað við íbúðir sem nú þegar eru í bygg­ingu má gera ráð fyrir að í ár og á næstu tveimur árum verði byggðar um 3.000-3.200 íbúðir á ári.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent