Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, seldi íbúð sína í Vesturbæ Reykjavíkur til Hauks Harðarssonar, eins eiganda Orku Energy, fyrir 53,5 milljónir króna árið 2013 og leigir hana til baka á 230 þúsund krónur á mánuði, án hita og rafmagns. Leigusamningur sem hann gerði við Hauk var til tveggja ára með vali á framlengingu. Frá þessu greinir Illugi í stöðuuppfærslu á Facebook sem birtist í hádeginu í dag.
Í gær skýrði ég frá því að við hjónin gátum ekki haldið íbúð okkar eftir nokkur fjárhagsleg áföll sem á okkur dundu...Posted by Illugi Gunnarsson on Monday, April 27, 2015
Þar segir Illugi að þau hjónin hafi orðið fyrir nokkrum fjárhagslegum áföllum fyrir nokkrum árum. "Hrunið lék okkur grátt eins og marga aðra af okkar kynslóð, gjaldþrot fyrirtækis sem ég og tengdafaðir minn heitinn áttum þýddi að á okkur féllu milljóna ábyrgðir og tekjumissir sem ég varð fyrir þegar ég tók mér launalaust leyfi frá þingstörfum gerði sitt. Við stóðum því frammi fyrir því að selja íbúð okkar eða eiga það á hættu að missa hana. Í stað þess að auglýsa íbúðina leitaði ég sjálfur að kaupanda og varð það úr að Haukur Harðarson, sem er einn eigenda Orka Energy og starfar erlendis keypti íbúðina. Við gerðum samhliða samning um leigu til tveggja ára og vali á framlengingu. Kaupverðið var 53,5 milljónir og leigan 230 þúsund krónur (án hita og rafmagns) á mánuði sem tók mið af markaðsaðstæðum í Vesturbænum þegar gengið var frá samningum árið 2013."
Illugi segist telja rétt að skýra frá þessu í ljósi þeirra spurninga sem hafi vaknað undanfarið um tengsl hans við Orka Energy, en hann var viðstaddur undirritum fyrirtækisins á samningi í vinnuheimsókn sinni til Kína nýverið. Illugi fullyrðir að tenging hans við Orku Energy, vegna kaupa eins eigenda fyrirtækisins á íbúð hans sem síðan hafi verið leigð honum aftur, hafi engin áhrif á hver aðkoma fyrirtækisins var að vinnuheimsókninni til Kína. "Ég vann verkefni fyrir Orka Energy á árinu 2011 og fékk að mestu greitt fyrir það árið 2012 eins og sjá má af tekjublöðum. Það varð kannski til að sem ráðherra gerði ég örugglega minna fyrir þá heldur en þáverandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson, þegar þau voru í Kína árið 2013 og ekki meira en Katrín Jakobsdóttir þáverandi menntamálaráðherra gerði þegar hún var viðstödd undirritun samninga Orka Energy og kínverskra stjórnvalda í Þjóðmenningarhúsinu árið 2012."