ÍLS: Fyrir hverja krónu í útlán fara fimm krónur í uppgreiðslu lána

9954417613_8888c2a1ab_z.jpg
Auglýsing

Íbúða­lána­sjóður lán­aði 423 millj­ónir króna í almenn útlán í jan­úar síð­ast­liðn­um. Á sama tíma greiddu við­skipta­vinir sjóðs­ins upp 1,9 millj­arða króna af lánum hans. Þetta er þróun sem hefur verið að eiga sér stað und­an­farin ár og hefur aldrei verið verri en í fyrra. Þá lán­aði sjóð­ur­inn ein­ungis út tæpa 4,7 millj­arða króna á meðan að við­skipta­vinir borg­uðu upp 26,3 millj­arða króna af lánum sín­um. Þetta kemur fram í mán­að­ar­skýrslum Íbúð­ar­lána­sjóðs. Í þeim er upp­lýst um hver almenn útlán sjóðs­ins voru í hverjum mán­uði fyrir sig og hversu háar upp­greiðslur á lánum sjóðs­ins voru.

Við­skipta­vinir sjóðs­ins eru því að greiða upp rúm­lega fimm krónur af lánum fyrir hverja eina krónu sem er tekin að láni hjá sjóðn­um.

Auglýsing


Tug­millj­arðar króna úr rík­is­sjóði



Vandi Íbúða­lána­sjóðs hefur vart farið fram­hjá nein­um. Frá árinu 2009 hefur rík­is­sjóður þurft að leggja sjóðnum til 53,5 millj­arða króna til að halda honum gang­andi. Gert er ráð fyrir að árlegt tap sjóðs­ins verði um eða yfir þrír millj­arðar krona næstu fimm árin, eða um 15 millj­arðar króna hið minnsta.

Íbúða­lána­sjóður lánar bæði hús­næð­is­lán, sem eru svokölluð almenn íbúð­ar­lán, og til bygg­inga­fram­kvæmda. Í skýrslum sem sjóð­ur­inn birtir á heima­síðu sinni mán­að­ar­lega er rakið hversu mikið hann lánar út í hverjum mán­uði og hversu háa fjár­hæð skuld­arar hans hafa ákveðið að greiða upp meðal ann­ars vegna þess að þeir eru að taka ný hús­næð­is­lán hjá við­skipta­banka og þar af leið­andi að hætta í við­skiptum við Íbúða­lána­sjóð.



Einn tíundi af útlánum árs­ins 2008



Alls nema upp­greiðslur á lánum Íbúða­lána­sjóðs frá árs­byrjun 2009 og til loka síð­asta árs 101,5 millj­örðum króna. Í jan­úar bætt­ust svo 1,9 millj­arðar króna við.

Fjár­hæð útlána hefur á sama tíma dreg­ist mjög skarpt sam­an. Þau voru 48,8 millj­arðar króna á árinu 2008 en hafa dreg­ist skarpt saman síð­an. Í fyrra voru þau ein­ungis um 4,7 millj­arðar króna, eða tæp­lega einn tíundi af því sem sjóð­ur­inn lán­aði árið 2008. Ekki byrj­aði árið í ár vel. Útlán Íbúða­lána­sjóðs í jan­úar voru 474 millj­ónir króna. Það er 32 millj­ónum króna minna en sjóð­ur­inn lán­aði út í jan­úar 2014.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None