Innkoma 365 miðla á netmarkaðinn breytti honum ekki mikið

skjar.jpg
Auglýsing

Inn­koma 365 miðla á inter­net­mark­að­inn hefur ekki breytt honum mik­ið. Sím­inn er enn alls­ráð­andi á þeim mark­aði og bætir við sig mark­aðs­hlut­deild, Voda­fone tapar tæp­lega 1.800 við­skipta­vinum á milli ára en er samt með mjög sterka stöðu sem næst stærsta fyr­ir­tækið á þessum mark­aði. Saman voru þessi tvö fyr­ir­tæki, Sím­inn og Voda­fo­ne, með 81,2 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í lok júní síð­ast­lið­ins þegar fjöldi netteng­inga er skoð­aður eftir fyr­ir­tækj­um. Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar sem birt var í lok síð­ustu viku.

Alls voru 116.606 netteng­ingar á Íslandi um mitt ár 2014. Þeim hafði fjölgað um tæp­lega 2.300 á milli ára. Tæp­lega 60 þús­und þess­arra teng­inga eru hjá Sím­an­um, sem þýðir að hann er með 51,2 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Fyr­ir­tækið bætir við sig tæp­lega 2.000 við­skipta­vinum á milli ára.

Voda­fone er næst stærst á net­mark­aðnum þrátt fyrir að teng­ingum hjá fyr­ir­tæk­inu fækki um tæp­lega 1.800 milli ára. Mark­aðs­hlut­deild Voda­fone er enn 30 pró­sent, en var 32,2 pró­sent á sama tíma í fyrra.

Auglýsing

Tal tapar og 365 miðla ná ekki miklu til sín



Tal, sem er þriðja stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem selur netteng­ing­ar, tapar hlut­falls­lega mik­illi mark­aðs­hlut­deil á milli ára. Við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins fækk­aði um tvö þús­und og eru nú ein­ungis 9.217. Mark­aðs­hlut­deild Tals er 7,9 pró­sent.

Fyr­ir­tækið Hringdu bætir líti­lega við sig á milli ára og er nú tæpur hálf­drætt­ingur á við Tal.

365 miðlar hófu að bjóða upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti í fyrra­haust. Nýja töl­fræði­skýrslan er því sú fyrsta sem sýnir árangur fyr­ir­tæk­is­ins í sölu á nettengingum.

365 miðlar hófu að bjóða upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti í fyrra­haust. Nýja töl­fræði­skýrslan er því sú fyrsta sem sýnir árangur fyr­ir­tæk­is­ins í sölu á netteng­ing­um. Fjöldi þeirra teng­inga sem fyr­ir­tækið hefur náð að selja er ekki sér­stak­lega til­greindur í skýrsl­unni heldur er hann settur undir lið­inn „Aðr­ir“ ásamt öðrum sölu­að­ilum netteng­inga utan við Sím­ann, Voda­fo­ne, Tal og Hringdu. Fjöldi netteng­inga undir þeim lið eykst um rúm­lega 3.500 á milli ára og var 8.522 í lok júní síð­ast­lið­ins. Því er ljóst að inn­koma 365 miðla á inter­net­mark­að­inn hefur að minnsta kosti ekki orsak­að eðl­is­breyt­ingu á hon­um.

Fyr­ir­tækið á langt í land með að kom­ast nálægt Sím­anum og Voda­fo­ne, jafn­vel þótt fyr­ir­huguð sam­ein­ing þess við Tal, með sína rúm­lega níu þús­und við­skipta­vini, gangi eft­ir. Vert er þó að taka fram að ein­ungis er liðið um eitt ár síðan að 365 miðlar hófu að bjóða net­þjón­ustu. Í krafti gíf­ur­lega sterkrar stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á sjón­varps­mark­aði, og þess að það sam­einar áskrift af sjón­varpi og sölu á netá­skriftum í til­boð­um, gæti mark­aðs­hlut­deild þess vaxið hratt á næstu miss­er­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None