Íslandspóstur segir í fréttatilkynningu að þróun bréfamagns hér á landi, hafi nú verulega neikvæð áhrif á afkomu bréfadreifingar Póstsins og að gera megi ráð fyrir að „tekjur af bréfadreifingu hefðu verið um 1.800 milljónum króna á árinu 2014 ef verð hefði breyst í samræmi við vísitölu neysluverðs og magn hefði haldist óbreytt frá árinu 2007.“
Tilkynningin, sem send var til fjölmiðla í dag, er með fyrirsögn um að fækkun bréfa, sem sagt minni notkun fólks á bréfasendinum til samskipta, hafi haft „alvarleg áhrif á afkomu Íslandspósts“.
Magnminnkun á bréfum sem Íslandspóstur hefur einkarétt á, það er á bréfum undir 50 grömmum, var 8,1 prósent í fyrra. Bréfanotkunin hefur minnkað úr 50 milljónum árið 2007 í 27,5 milljónir í fyrra, eða um 45 prósent, að því er segir í tilkynningunni.
Gera má ráð fyrir að tækniþróun eigi þarna mikinn hlut að máli, enda bréfasendingar ekki eins og mikið notaðar til samskipta og upplýsingaskipta nú eins og á árum áður, þegar internetið hafði ekki umbylt samskiptamöguleikum.
„Spá Íslandspósts gerir ráð fyrir enn frekari magnminnkun á næstu árum en gert er ráð fyrir að hún geti orðið allt að 30% til ársloka 2019,“ segir í tilkynningu Íslandspósts.
Þróun bréfamagns hefur haft veruleg áhrif á afkomu bréfadreifingar Póstsins en gera má ráð fyrir að tekjur af bréfadreifingu hefðu verið um 1.800 mkr. hærri á árinu 2014 ef verð hefði breyst í samræmi við vísitölu neysluverðs og magn hefði haldist óbreytt frá árinu 2007. Þegar horft er til ársins 2019 má gera ráð fyrir að tekjur verði um 800 milljónum lægri en árið 2014.
Í tilkynningunni kvartar Íslandspóstur enn fremur undan því að kvaðir um póstdreifingu séu enn þær sömu og áður, og dreifikerfið haldi áfram að stækka, með fleiri póstlúgum.
„Burðargjöld eru lægst á Íslandi samanborið við Norðurlöndin, Bretland og Þýskaland samkvæmt nýútkominni skýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar í Svíþjóð en á sama tíma eru hlutfallslega fæst bréf á íbúa hér á landi. Íslandspóstur hefur um nokkurt skeið gert tillögur til stjórnvalda um breytingar á fyrirkomulagi bréfadreifingar til þess að mæta auknum kostnaði og minnkandi tekjum af bréfum, en ekki er búið að fallast á þær breytingar enn sem komið er,“ segir í fréttatilkynningu Íslandspósts.