Í lok apríl bjuggu 329.740 manns á Íslandi, 165.650 karlar og 164.090 konur. Landsmönnum fjölgaði um 700 á ársfjórðungnum, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 211.830 manns en 117.920 utan höfuðborgarsvæðis.
Á fyrsta ársfjórðungi 2015 fæddust 990 börn, en 600 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 290 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 370 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 660 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara, en þangað fluttust 220 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 530 íslenskir ríkisborgarar af 800 alls. Af þeim 430 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 100 manns, að því er segir í umfjöllun Hagstofu Íslands.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (120), Noregi (110) og Svíþjóð (60), samtals 300 manns af 430. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara, en þaðan fluttust 340 til landsins af alls 1.090 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 70 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fyrsta ársfjórðungs bjuggu 24.730 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.