Ísraelski samheitalyfjarisinn Teva Pharmaceutical Industries hefur tilkynnt um kaup á samheitalyfjaarmi Allergan, sem er móðurfélag Actavis á Íslandi. Teva mun greiða 33,75 milljarða dala í peningum og 6,75 milljarðar verða greiddir með hlutabréfum í Teva. Samhliða þessum kaupum hefur Teva hætt við kaup á keppinautnum Mylan.
Kaupin eru þau síðustu í röð margra stórra samruna í heilbrigðisgeiranum, en mikil samþjöppun hefur orðið í greininni, einkum vegna breyttrar heilbrigðislöggjafar í Bandaríkjunum.
Allergan hét áður Actavis og starfsemin á Íslandi er enn rekin undir nafni Actavis. Greint var frá því í lok júní að lyfjaverksmiðja Actavis á Íslandi myndi flytjast frá Íslandi í hagræðingarskyni. 300 manns vinna nú við lyfjaframleiðslu hér á landi en framleiðslan verður flutt í skrefum fram til ársins 2017. Þá var því heitið að önnur starfsemi á Íslandi yrði óbreytt, en 400 til viðbótar við þessi 300 starfa hjá fyrirtækinu hér á landi.
Sigurður Óli Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Actavis á Íslandi, er nú forstjóri samheitalyfjasviðs Teva. Teva er stærsti framleiðandi samheitalyfja í heiminum og er fyrirtækið metið á um sextíu milljarða dala.