Samtökin Já Ísland, sem berjast fyrir aðild að Evrópusambandinu, fordæma þá „fádæma vanvirðingu sem ríkisstjórn Íslands sýnir þingi og þjóð með framgöngu sinni í Evrópumálum síðustu daga.“ Þetta kemur fram í tilkynningu sem samtökin sendu frá sér í dag. Til mótmæla því sem samtökin kalla gerræði á kostnað lýðræðis hafa þau boðað til mótmæla á Austurvelli á morgun, sunnudag, klukkan 14.
Í tilkynningunni, sem ber yfirskriftina „Gerræði ríkisstjórnar Íslands mótmælt“, segir enn fremur að fyrir síðustu kosningar hafi verið gefin skýr og afdráttarlaus loforð um aðkomu þjóðarinnar að afdrifum Evrópusambandsumsóknarinnar. Þau loforð hafi verið svikin.
„Ríkisstjórnin gerði tilraun til þess að slíta umsóknarferli Íslands með þingsályktunartillögu fyrir ári síðan. Ekki tókst að koma þeirri tillögu í gegnum þingið og 53.555 Íslendingar kröfðust þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald málsins. Það eru rúm 20% kosningabærra Íslendinga.
Í stað þess að verða við kröfunni um þjóðaratkvæði og standa við eigin loforð var að nýju boðuð þingsályktunartillaga sem yrði lögð fyrir þing á þessum vetri. Það fullyrtu forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra. Á þeim var enginn bilbugur.
Nú hefur komið í ljós að þessar yfirlýsingar voru fals eitt. Í stað þess að standa við þær var ákveðið að afhenda bréf. Bréf sem enginn vissi um nema ríkisstjórnin ein. Með þessu voru þingið og þjóðin blekkt með ósvífnum hætti. Ríkisstjórnin gerir með þessu tilraun til þess að fara á svig við eðlilegar leikreglur siðaðs samfélags - sem betur fer er tilraunin klámhögg sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar, forseti Alþingis og formaður utanríkismálanefndar hafa hver sinn skilning á og Evrópusambandið skilur alls ekki," segir í tilkynningunni.