Upplýsinga- og þjónustufyrirtækið Já hf. hefur ákveðið að loka þjónustuveri sínu í Reykjanesbæ frá og með 1. júní næstkomandi. Við þessar breytingar fækkar stöðugildum þjónustufulltrúa hjá Já um allt að sjö manns. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu sem send var fjölmiðlum í dag.
Þar segir að stöðugildum þjónustufulltrúa hafi fækkað jafnt og þétt samhliða aukinni notkun á stafrænum miðlum sem séu ókeypis fyrir neytendur. Þessar breytingar á markaðsumhverfi Já hafi valdið því að eftirspurn eftir símaþjónustu hafi dregist saman. Á sama tíma og áðurnefndar breytingar eigi sér stað hjá fyrirtækinu fjölgi sérfræðistörfum hjá Já í takt við breyttar áherslur notenda.
„Þetta eru sársaukafullar aðgerðir, bæði að þurfa að fækka í starfsliðinu og ekki síður að loka þjónustuverinu í Reykjanesbæ. Þar höfum við haft öfluga starfsstöð og gott fólk.” Þetta er haft eftir Lilju Hallbjörnsdóttur, þjónustustjóra Já, í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.