Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar, hyggst bjóða sig fram til formanns nýrra regnhlífarsamtaka í sjávarútvegi sem verða til með sameiningu Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Samtaka fiskvinnslustöðva. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jens Garðari sem birt er á vef LÍÚ. Sameiginlegur aðalfundur samtakanna fer fram 31. október en tillaga um sameiningu félaganna verður tekin fyrir á fundinum.
Í tilkynningu segir Jens Garðar að hann sjái mikil tækifæri í sjávarútvegnum. „Íslenskur sjávarútvegur er nútímaleg, hátæknivædd atvinnugrein í harðri alþjóðlegri samkeppni. Það felast mikil tækifæri í því fyrir sjávarútveginn að sameina fyrirtæki sem starfa að veiðum, vinnslu, sölu- og markaðssetningu sjávarafurði í ein, öflug samtök. Við þurfum að horfa til framtíðar, greina sóknarfærin og vinna að eflingu og samkeppnisfærni sjávarútvegsins þjóðinni allri til hagsbóta. Ég vil bjóða fram mína krafta í því starfi sem framundan er og þá reynslu sem ég hef af sjávarútvegsrekstri,“ segir Jens Garðar í tilkynningu.
Jens Garðar er fæddur og uppalinn á Eskifirði 1976, stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og stundaði nám í viðskiptafræði í Háskóla Íslands 1997 til 2000.