Kári Stefánsson hvetur Sigmund Davíð til sleppa byggingu og kaupa tæki handa lösnu fólki

kari_2_0.jpg
Auglýsing

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, hvetur Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra til að setja áætl­anir sínar um að byggja hús Íslenskra fræða til hliðar og flytja það fjár­magn sem hann áætlar í fram­kvæmd­ina "yfir í kaup á tæki til að þess að hlúa að lösnu fólki. Þetta kemur fram í grein eftir Kára sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag og ber nafnið "Konur og börn í bát­anna fyrst".

Áhugi sem deilist með Karli Breta­prins



Sig­mundur Davíð lagði til­lögu fyrir rík­is­stjórn um síð­ustu mán­að­ar­mót sem í fólst að klára bygg­ingu húss Íslenskra fræða, byggja við Alþingi og ráð­ast í upp­bygg­ingu á Þing­völlum í til­efni af hund­rað ára afmælis full­veldis Íslend­inga þann 1. des­em­ber 2018.

Kári segir þessi áform Sig­mundar Dav­íðs vera vegna áhuga hans á bygg­ingum og skipu­lags­mál­um, sem hann deili með Karli Breta­prins. "Áhug­ans vegna virð­ist honum ann­að­hvort hafa gleymst að 1. des­em­ber 1918 hlutum við Íslend­ingar tölu­vert sjálf­stæði frá Dönum eða honum hefur yfir­sést að við erum að glata því aftur að hluta. Og hvernig í ósköp­unum hefur það ger­st? Það hefur gerst með því að jáeindaskannar hafa orðið nauð­syn­leg tæki í nútíma lækn­is­fræði og Danir eiga slíkan en við ekki. Á síð­asta ári sendum við 100 sjúk­linga til Kaup­manna­hafnar í jáeindaskanna og í ár verða þeir að öllum lík­indum 200. Við getum ekki lengur sinnt sjúk­lingum okkar án þess að leita á náðir Dana. Það er með öllu óásætt­an­legt og í engu sam­ræmi við þær vænt­ingar sem Íslend­ingar höfðu í byrjun des­em­ber árið 1918."

Frekar tæki fyrir lasið fólk en hús



Að mati Kára væri það mun nær and­anum sem sé að baki fyrsta des­em­ber að halda upp á hund­rað ára afmæli full­veld­is­ins með því að flytja jáeind­arskanna til lands­ins en að byggja hús. Með því yrði end­ur­heimt sjálf­stæði frá Dönum sem Íslend­ingar vilja hafa og for­feður okkar börð­ust fyr­ir. "Ein hliðin á þessu er sú að það er mik­il­væg­ara fyrir íslenskt mál að halda líf­inu í þeim sem tala það en að reisa hús yfir þá sem rann­saka það. Ég dreg að vísu til baka þá stað­hæf­ingu hér að ofan að þetta sé dæmi um spaugi­legar afleið­ingar þess að menn láti reynslu­heim sinn og áhuga trufla mat á augna­blik­inu og veiti þar með for­dæmi um það hversu auð­velt það sé að skipta um skoðun þegar við á.

Nýja skoð­unin mín er að þetta sé dæmi um dap­ur­legar afleið­ingar þess að for­sæt­is­ráð­herra hefur áhuga á bygg­ingum og skipu­lags­mál­um. Ég er hand­viss um að meiri­hluti lands­manna er mér sam­mála um þetta og því bendi ég for­sæt­is­ráð­herra á þann mögu­leika að fylgja for­dæmi mínu og skipta um skoðun sem sagan hefur kennt okkur að hann geti auð­veld­lega og flytja það fé sem hann er í þann veg­inn að setja í hús vestur á Melum yfir í kaup á tæki til þess að hlúa að lösnu fólki. Það væri í miklu betra sam­ræmi við þá for­gangs­röðun sem fólkið í land­inu aðhyllist og ég veit að for­sæt­is­ráð­herra hefur oft­ast fylgt í lífi sínu og starfi og gengur undir nafn­inu: konur og börn í bát­ana fyrst. Ginn­ungagapið vestur á Melum má alltaf nýta til þess að jarð­setja nöldur og vondar hug­myndir sem þessa dag­ana ber­ast úr hlöðnu stein­húsi við Aust­ur­völl," segir Kári Stef­áns­son.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None