Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að hin nýja þjóðfélagsumræða á internetinu einkennist af illmælgi og hatri, og pólitískt einelti þyki sjálfsagt. Í þessari nýju umræðu þurfi „aldrei að færa sönnur eða standa skil á hástemmdum yfirlýsingum um nafngreinda einstaklinga.“
Hann segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þyki tilvalið skotmark í þessari umræðu. „Þegar hann er annars vegar er allt leyfilegt og oftar er ekki er ráðist að honum persónulega. Ráðherrar þurfa vissulega að geta tekið gagnrýni, en hún þarf að vera heiðarleg og málefnaleg. Og hún á síst að öllu að beinast að persónu viðkomandi,“ skrifar Karl á blogg sitt á Eyjunni.
„Ef menn reyna að bera hönd fyrir höfuð sér eru þeir sakaðir um að vera hörundsárir og kunna ekki að taka gagnrýni. Þannig er tryggt að hatursumræðan fái að halda áfram og lifi sjálfstæðu lífi.“
Karl segir að umræðan lúti stjórn „örfárra einstaklinga sem lítið annað virðast hafa fyrir stafni en að dreifa óhróðri um nafngreinda einstaklinga. Viðhlæjendur eru hins vegar margir.“
Karl segir að við séum komin langt út fyrir „sem eðlilegt getur talist“ í þessum málum. Umræðan og gagnrýni sé góð en hatur og einelti sé engum til góðs.