Katrín Jakobsdóttir vill þak á leiguverð íbúðahúsnæðis

katajaknytt2-1.jpg
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, vill að sett verði þak á leigu­verð á íslenskum hús­næð­is­mark­aði. Hún seg­ist hitta æ fleira fólk á öllum aldri sem lýsi erf­iðri stöðu á hús­næð­is­mark­aði og að við­brögð stjórn­valda við þessu ástandi hafi ekki verið sann­fær­andi. Hin svo­kall­aða leið­rétt­ing hafi til að mynda engu breytt fyrir leigj­endur sem eru um þriðj­ungur heim­ila lands­ins. Þetta kemur fram í grein sem Katrín skrifar í Frétta­blaðið í dag.

Engin lausn að láta ungt fólk búa lengur heima hjá for­eldrum



Í grein­inni segir Katrín að hús­næð­is­mál séu eitt brýn­asta við­fangs­efni stjórn­mál­anna um þessar mund­ir. "Eftir efna­hags­hrun­ið, þar sem bygg­inga­iðn­aður hrundi og margir misstu hús­næði sitt á sama tíma, eru æ fleiri sem eiga í erf­ið­leikum með að koma sér þaki yfir höf­uð­ið. Ég hitti æ fleira fólk á öllum aldri sem lýsir erf­iðri stöðu á hús­næð­is­mark­aði; ungt fólk sem ekki fær greiðslu­mat til fast­eigna­kaupa en greiðir eigi að síður him­in­háa leigu, eldra fólk sem greiðir háan hluta launa sinna í leigu af örsmáu hús­næði og svo mætti lengi telja."

Henni finnst stjórn­völd ekki hafa brugð­ist við þessu ástandi með sann­fær­andi hætti. Hin svo­kall­aða leið­rétt­ing hafi ekk­ert gert fyrir leigj­endur og beðið hafi ver­ið eftir hús­næð­is­frum­vörpum Eyglóar Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Þau spil sem sýnt hafi verið á í þessum efnum hafi valdið von­brigðum og ekk­ert þess­ara mála hafi klár­ast. "Stað­reyndin er sú að leigu­verð hefur hækkað mjög og öryggi leigj­enda er lít­ið. Margir kjósa að leigja út til skemmri tíma fyrir hærra verð. Félags­leg úrræði á leigu­mark­aði duga ekki til og leigusalar hafa rúmar heim­ildir til að hækka leigu­verð á leigj­endur sína án nokk­urs fyr­ir­vara eins og nýleg dæmi frá Reykja­nesbæ sýna.

Lausnin getur ekki verið sú að ungt fólk búi lengur heima hjá pabba og mömmu og pabbi og mamma eru ekki heldur alltaf í aðstöðu til þess að hýsa heilu fjöl­skyld­urn­ar. Það þarf alvöru úrræð­i."

Auglýsing

Tryggja að borgir séu fyrir alla



Katrín segir að í á liðnu vori hafi hún bein fyr­ir­spurn til félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hvort ekki væri rétt að setja þak á leigu­verð þannig að leigu­sölum sé leigu­verð ekki í sjálfs­vald sett. "Slík lög hafa lengi verið í gildi í Sví­þjóð og nú nýlega voru slíkar reglur settar í Berlín því að borg­ar­yf­ir­völdum finnst mik­il­vægt að tryggja að borgin sé fyrir alla, ekki ein­ung­is el­ít­una.

Fátt var um svör en ég hvet ráð­herra og aðra sem koma að málum að skoða þessa hug­mynd alvar­lega. Þak yfir höfuð er hluti af grunn­þörfum manns­ins og þar hefur hið opin­bera skyldum að gegna. Leigu­mark­að­ur­inn á ekki að lúta frum­skóg­ar­lög­málum enda varðar hann vel­ferð fólks­ins í land­inu og hún á að vera for­gangs­mál stjórn­mál­anna."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None