Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings samsteypunnar, verða færðir af Kvíabryggju yfir í lokað fangelsi, þá Litla-Hraun eða eftir atvikum fangelsið á Hólmsheiði, til afplánunar, fallist héraðsdómur á kröfu ákæruvaldsins í stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings. Þá mun Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, fara beint í afplánun í lokað fangelsi, verði héraðsdómur við kröfu ákæruvaldsins.
Krafðist þyngri refsinga yfir þremenningum
Björn Þorvaldsson saksóknari krafðist þess við málflutning markaðsmisnotkunarmálsins í héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum að refsirammi yrði fullnýttur við ákvörðun refsingar vegna meintra brota þremenninganna, og að sömuleiðis yrði litið til 72. greinar almennra hegningarlaga um aukna refsingu.
Markaðsmisnotkun getur varðað allt að sex ára fangelsi og í áðurnefndri grein almennra hegningarlaga segir: „Hafi maður lagt það í vana sinn að fremja brot, einnar tegundar eða fleiri, eða hann gerir það í atvinnuskyni, má auka refsinguna svo, að bætt sé við hana allt að helmingi hennar. Eigi ítrekun á þessu sér stað, má refsingin tvöfaldast.“
Kröfu sinni, um þyngri refsingu yfir Sigurði og Hreiðar Má, til stuðnings vísaði saksóknari til niðurstöðu Hæstaréttar í Al-Thani málinu svokallaða, en í tilfelli Ingólfs að meint brot hans falli undir ákvæði almennra hegningarlaga vegna þess hve þau hafi staðið yfir í langan tíma.
Gætu fengið allt að níu ára fangelsi
Fallist héraðsdómur á kröfu ákæruvaldsins gætu þremenningarnir því hlotið allt að níu ára fangelsi. Þar með myndu þeir ekki uppfylla skilyrði Fangelsismálastofnunar um vistun í „opnu“ fangelsi á borð við Kvíabryggju og verða vistaðir í lokuðu fangelsi til afplánunar. Eins og kunnugt er afplána nú Sigurður og Hreiðar þunga fangelsisdóma á Kvíabryggju vegna aðildar sinnar að Al-Thani málinu. Skilyrði Fangelsismálayfirvalda fyrir vistun í fangelsinu er að fangi afpláni að jafnaði ekki lengur en þrjú ár á staðnum.
Fangelsið á Litla-Hrauni. Mynd: BÞH
„Fangelsismálastofnun miðar við að fangar séu ekki vistaðir lengur en þrjú ár í opnum fangelsum. Það gengur jafnt yfir alla skjólstæðina Fangelsismálastofnunar. Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um málefni einstakra dómþola,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri í skriflegu svari við fyrirspurn Kjarnans.
Ekki liggur fyrir hvenær héraðsdómur kveður upp dóm sinn í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings, en viðbúð er að niðurstöðunni verði áfrýjað til Hæstarétts Íslands verði um sakfellingar að ræða. Sigurður og Hreiðar Már verða því ekki fluttir á Litla-Hraun eða í nýtt fangelsi á Hólmsheiði fyrr en að undangenginni niðurstöðu Hæstaréttar.
Fleiri mál í farvatninu
Sigurður, Hreiðar og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, sem hlaut fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm fyrir aðild sína að Al-Thani málinu og er sömuleiðis ákærður í stóra markaðsmisnotkunarmálinu, eru einnig ákærðir í CLN-málinu svokallaða þar sem þeim er gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína sem stjórnendur bankans í lánveitingum til nokkurra félaga sem voru í eigu viðskipavina bankans.
Þriðja málið sem rekið er fyrir dómstólum, og beinist að Kaupþingstoppunum, er Marple-málið svonefnda, en Hreiðar Már og Magnús sæta þar ákæru ásamt Guðnýju Örnu Sveinsdóttur, fyrrverandi fjármálastjóra bankans, og Skúla Þorvaldssyni, fjárfesti og fyrrverandi stórs hluthafa Kaupþings. Ákært er fyrir fjárdrátt, þegar færðir voru átta milljarðar króna úr sjóðum Kaupþings til félagsins Marple, sem var í eigu Skúla Þorvaldssonar, án þess að heimild væri fyrir því.