Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra, segir að það komi vel til greina að stokka upp í ríkisstjórninni á næsta hálfa árinu og gera breytingar á samstarfi ríkisstjórnarflokkanna. Þetta kom fram í viðtali við Bjarna á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.
Þar sagði Bjarni: "Mér finnst það vel koma til greina að hreyfa til, bæði milli flokkanna og innan ríkisstjórnarinnar. Ég get vel séð fyrir mér að við gerum einhverjar slíkar breytingar. Við höfum ekki tekið neina ákvörðun um slíkt en á næsta hálfa árinu væri rétt að taka þá ákvörðun um það ef til þess ætti að koma svo menn væru ekki að taka að sér ný verkefni þegar of stutt er til kosninga."
Bjarni sagðist alltaf hafa verið opin fyrir slíkum breytingum. "Við ræddum það við stjórnarmyndunina við Sigmundur að svona í hálfleik myndum við kannski skoða þau mál.“
Tvær breytingar hafa verið gerðar á ráðherraskipan það sem af er yfirstandandi kjörtímabili, sem er nú rúmlega hálfnað. Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af sér embætti innanríkisráðherra undir lok árs 2014 og Ólöf Nordal, sem hafði stígið út af hinu pólitíska sviði fyrir þingkosningarnar 2013, tók við af henni. Þá var Sigrún Magnúsdóttir gerð að umhverfis- og auðlindarráðherra þann 30. desember 2014 þegar ráðherrum var fjölgað um einn. Áður hafði Sigurður Ingi Jóhannsson farið með ráðuneyti ásamt þeim sem hann stýrir í dag.