„Kjaraviðræður eru í alvarlegum hnút. Verkalýðshreyfingin kemur til kjaraviðræðna með kröfur um tugprósenta launahækkanir í skammtímasamningi. Næðu slíkar kröfur fram að ganga myndi verðbólgan fara á flug á nýjan leik. Leita verður allra leiða til að forða því.“ Þannig hefst fréttatilkynning frá Samtökum atvinnulífsins, þar sem greint er frá því að nauðsynlegt sé að taka kjarasamningsviðræðurnar inn í nýjan farveg, þar sem launakerfin eru endurskoðuð í heild sinni. „Nálgast verður kjaraviðræður með allt öðrum hætti ef ekki á illa að fara. Samtök atvinnulífsins óska eftir uppbyggilegu samstarfi við samtök launafólks um nýja nálgun um að stokka upp áratugagömul launakerfi með sameiginlega hagsmuni launafólks og fyrirtækja að leiðarljósi. Launakerfin eru komin vel til ára sinna. Tiltölulega lág grunnlaun í samanburði við heildarlaun, háar álagsgreiðslur og mikill ósveigjanleiki í skipulagi vinnutíma svara illa þörfum atvinnulífsins. Vaxandi greinar á borð við ferðaþjónustu kalla á mun meiri sveigjanleika. Sama gildir um aðrar lykilatvinnugreinar á borð við iðnað og sjávarútveg, svo ekki sé minnst á nýsköpunarfyrirtæki,“ segir í tilkynningunni.
SA leggja til að grunnlaun verði hækkuð en jafnframt verði samningsbundnar álagsgreiðslur á laun lækkaðar. „Álagsgreiðslur á Íslandi, á borð við greiðslur fyrir yfirvinnu og vaktavinnu, eru mun hærri hér en í nágrannalöndunum. Hátt hlutfall yfirvinnugreiðslna er kerfislægur þáttur í launakerfum á Íslandi sem að töluverðu leyti má rekja til reglna í kjarasamningum. Stuðningur launafólks hefur farið vaxandi við að dregið sé úr yfirvinnu og betri framfærslumöguleikar skapist af dagvinnulaununum einum, enda er það mikilvægt til að tryggja jafnvægi á milli atvinnu og fjölskyldulífs,“ segir í tilkynningunni.
Jafnframt segir að uppstokkun launakerfa gæti orðið farvegur til að koma til móts við kröfur um betri framfærslumöguleika dagvinnulauna og styttri vinnutíma án þess að raska verðstöðugleika.
Starfsgreinasambandið (SGS) og stéttarfélög iðnaðarmanna hafa lagt fram kröfur um 20 til 30 prósent hækkun launa, en SA hafa ekki viljað ræða um kjarasamninga á þeim forsendum, og því eru kjarasamningsviðræður í algjörum hnút. Búist er við því að SGS, sem er með sextán félög innan sinna vébanda, grípi til verkfallsaðgerða í kringum 10. apríl.