Kjarninn eflist, Hjálmar Gíslason leiðir hóp nýrra hluthafa

Kjarninn-undirskrift.jpg
Auglýsing

Kjarn­inn miðlar ehf., félag sem á og rekur Kjarn­ann, hefur lokið hluta­fjár­aukn­ingu. Hjálmar Gísla­son leiðir hóp fjár­festa með mikla reynslu af frum­kvöðla­starf­semi og upp­bygg­ingu nýrra fyr­ir­tækja sem koma nú inn í eig­enda­hóp Kjarn­ans. Hjálmar verður auk þess for­maður nýrrar stjórnar Kjarn­ans. Þá munu ýmsir sér­fræð­ingar sitja í ráð­gjafa­ráði Kjarn­ans, en hlut­verk þess verður að vera stjórn­endum og stjórn Kjarn­ans innan handar og til aðstoðar við að hrinda í fram­kvæmd nýjum verk­efn­um.

Stofn­endur og starfs­menn Kjarn­ans munu áfram eiga rúman meiri­hluta í félag­inu (67 pró­sent). Til­kynn­ing um breyt­ingu á eig­enda­hópi Kjarn­ans hefur verið send Fjöl­miðla­nefnd líkt og lög gera ráð fyr­ir.

Fjöl­mörg tæki­færi



Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Datamarket, leiðir hóp nýrra fjárfesta sem keypt hafa hlut í Kjarnanum. Hjálmar er nýr stjórnarformaður Kjarnans. Hjálmar Gísla­son, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Data­mar­ket, leiðir hóp nýrra fjár­festa sem keypt hafa hlut í Kjarn­an­um. Hjálmar er nýr stjórn­ar­for­maður Kjarn­ans.

Hjálmar Gísla­son, stjórn­ar­for­maður Kjarn­ans segir Kjarn­ann fyrst og fremst vera afburða fjöl­mið­il. „Á rétt rúmu ári hefur þessum hópi tek­ist að byggja upp öfl­ugan, gagn­rýn­inn og grein­andi fjöl­miðil og vöru­merki sem fólk treyst­ir. Við sjáum fjöl­mörg tæki­færi til að byggja á þessum grunni, ekki síst í þeim breyt­ingum sem bæði fjöl­miðla- og aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn eru nú að ganga í gegn­um. Það fylgir því mikið frelsi og hag­kvæmni að ein­beita sér að staf­rænni miðlun en vera ekki bund­inn við ljós­vaka- eða prent­miðla.  Á sama tíma er íslenski mark­að­ur­inn frekar óþrosk­aður þegar kemur að net­inu, sér­stak­lega hvað varðar aug­lýs­inga­miðl­un. Ég hef sagt Kjarnateym­inu það ítrekað í þessu ferli að ef ég væri að hugsa um að stofna fyr­ir­tæki í dag, yrði það lík­lega fjöl­miðla­fyr­ir­tæki.“

Auglýsing

Hjalti Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Kjarn­ans segir aðkomu þessa öfl­uga hóps fjár­festa vera mikla við­ur­kenn­ingu á þeirri ómældu vinnu sem stofn­endur Kjarn­ans, og þeir sem hafa starfað fyrir mið­il­inn, hafa lagt á sig. „Nú er Kjarn­inn loks að verða full­orð­inn. Við hlökkum mikið til að byrja að vinna með Hjálm­ari og félög­um. Aðkoma þeirra, þekk­ing og reynsla gerir okkur kleift að sækja fram af miklum krafti næstu miss­erin og nýta þau fjöl­mörgu staf­rænu tæki­færi sem breytt neysla á fjöl­miðum hefur leitt af sér.“

Tæki­færi í gjör­breyttu fjöl­miðla­lands­lagi



Fyrir mán­uði síð­an, hinn 2. októ­ber, steig Kjarn­inn fyrsta skrefið í sókn sinni með því að kynna til leiks nýjan og öfl­ugan frétta­vef sem sinnir dag­legri frétta­þjón­ustu. Sam­hliða hófst útgáfa dag­legs frétta­bréfs Kjarn­ans auk þess sem hlað­varps­út­gáfa hans var efld. Í nóv­em­ber munu sex mis­mun­andi hlað­varps­þættir vera á dag­skrá í hverri viku. Við­tökur við þessum breyt­ingum hafa verið framar von­um.

Á næst­unni mun Kjarn­inn renna enn fleiri stoðum undir þann grunn sem þegar er til staðar og nýta þau tæki­færi sem fel­ast í gjör­breyttu fjöl­miðla­lands­lagi til að skapa sterkt Kjarna­sam­fé­lag, með áfram­hald­andi áherslu á gagn­rýni, gæði og dýpt í efn­is­tök­um.

Eig­endur Kjarn­ans að lok­inni hluta­fjár­aukn­ingu eru:

Mið­eind ehf., í eigu Vil­hjálms Þor­steins­sonar (13,7 pró­sent), Magnús Hall­dórs­son (13,0 pró­sent), Þórður Snær Júl­í­us­son (13,0 pró­sent), Ægir Þór Eysteins­son (11,5 pró­sent), Gísli Jóhann Eysteins­son (11,5 pró­sent), Hjalti Harð­ar­son (11,5 pró­sent), HG80 ehf. í eigu Hjálm­ars Gísla­sonar (8,1 pró­sent), Fagri­skógur ehf., í eigu Stef­áns Hrafn­kels­sonar (6,3 pró­sent), Ágúst Ólafur Ágústs­son (5,0 pró­sent), Jónas Reynir Gunn­ars­son (3,2 pró­sent) og Birgir Þór Harða­son (3,2 pró­sent).

Stjórn Kjarn­ans skipa Hjálmar Gísla­son stjórn­ar­for­mað­ur, Guð­rún Inga Ing­ólfs­dóttir og Vil­hjálmur Þor­steins­son.

Ráð­gjafa­ráð Kjarn­ans skipa Ágúst Ólafur Ágústs­son, Hjalti Þór­ar­ins­son, Ragn­heiður M. Magn­ús­dótt­ir, Rakel Tóm­as­dóttir og Stefán Hrafn­kels­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None