Klara Bjartmarz hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ). Stjórn KSÍ ákvað þetta á fundi sínum í gær. Klara hafði gengt starfi framkvæmdastjóra tímabundið frá því í mars á þessu ári, þegar Þórir Hákonarson lét af störfum. Frá þessu er greint á heimasíðu KSÍ.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að starfið hafi ekki verið auglýst. Einhugur hafi verið innan stjórnar sambandsins um að ráða Klöru.
Hún hefur hefur starfað fyrir KSÍ síðan í janúar 1994, lengst af við mótamál og landslið kvenna. Þá gegndi hún jafnframt starfi skrifstofustjóra KSÍ um árabil. Að auki hefur Klara starfað fyrir UEFA sem eftirlitsmaður á alþjóðlegum leikjum.
Þórir Hákonarson sagði upp störfum sem framkvæmdastjóri KSÍ í febrúar en Þórir hafði gegnt starfi framkvæmdastjóra sambandsins í tæp átta ár, eða frá vordögum 2007. Þórir tilkynnti um uppsögn sína í pistli á heimasíðu sambandsins sem birtist 19. febrúar. Hann hætti síðan störfum nokkrum dögum síðar, 1. mars 2015. Klara tók þá, líkt og áður sagði, tímabundið við starfi hans.
Klara er fyrsta konan sem gegnir stöðu framkvæmdastjóra KSÍ frá því að fyrsti launaði framkvæmdastjórinn var ráðinn árið 1967. Áður en hún tók við starfinu höfðu 17 karlmenn gengt því. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, gerði það lengst allra, frá 1997 til 2007, eða þar til hann var kjörinn formaður sambandsins.