Komst ekki til Parísar vegna skamms fyrirvara, ferðatíma og dagskrár

9951287705_351870c03c_z.jpg
Auglýsing

Skammur fyr­ir­vari, ferða­tími til Par­ísar og dag­skrá ráð­herra varð til þess að hvorki Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra né Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sáu sér fært um að taka þátt í sam­stöðu­göngu sem fram fór í París í gær vegna hryðju­verka­árásanna sem framdar voru þar í síð­ustu viku. Þess í stað var Nína Björk Jóns­dótt­ir, stað­geng­ill sendi­herra Íslands í Frakk­landi, full­trúi Íslands í göng­unni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Yfir 40 ­þjóð­ar­leið­togar mættu í göng­una til að sýna sam­stöðu, meðal ann­ars for­sæt­is­ráð­herrar allra hinna Norð­ur­land­anna.

Mbl.is greindi frá því í gær að Sig­mundi Davíð hafi verið boðið í göng­una en að hann myndi ekki mæta í hana. Engar skýr­ingar voru gefnar á fjar­veru for­sæt­is­ráð­herr­ans í frétt mbl.­is. Þær skýr­ingar voru fyrst gefnar í gær­kvöldi í til­kynn­ingu á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Auglýsing

Til­kynn­ing for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins:



„Vegna frétta­flutn­ings af boði til íslenskra stjórn­valda um þátt­töku ­full­trúa Íslands í sam­stöðu­göngu í París í dag vill for­sæt­is­ráðu­neytið kom­a ­leið­rétt­ingum á fram­færi og árétta eft­ir­far­andi:

Í kjöl­far atburð­anna í París í lið­inni viku átti for­sæt­is­ráð­herra fund með­ P­hil­ippe O´Quin, sendi­herra Frakk­lands á Íslandi. Á fund­inum kom ­for­sæt­is­ráð­herra form­lega á fram­færi sam­stöðu- og sam­úð­ar­kveðjum frá­ ­rík­is­stjórn­inni og íslensku þjóð­inni vegna hryðju­verka­árásanna á rit­stjórn­ar­skrif­stofu Charlie Hebdo í París og sagði árás­ina grimm­úð­lega at­lögu að tján­ing­ar- og prent­frelsi, sem eru grund­vall­ar­gildi og ­mann­rétt­indi sem brýnt er að standa vörð um. For­sæt­is­ráð­herra gerð­i ­sendi­herr­anum grein fyrir því að atburð­irnir hefðu haft mikil áhrif á sig og bar lof á ein­urð og sam­stöðu Frakka í að láta ekki undan ógn­un­um.

Síðla dags á föstu­dag barst for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og ­skrif­stofu for­seta Íslands orð­send­ing frá sendi­ráði Frakk­lands á Ísland­i þar sem segir að erlendum gestum standi til boða að taka þátt í sam­stöðu­göng­unni sem efnt var til í París í dag. Í bréf­inu voru einnig ­þakk­aðar orð­send­ingar og auð­sýnd samúð og sam­staða íslenskra stjórn­valda ­vegna máls­ins.

Rétt er að taka fram, að ekki var um að ræða boð Frakk­lands­for­seta til­ ­for­sæt­is­ráð­herra Íslands eins og haldið var fram í nokkrum fréttum í dag.

Þá er einnig rétt að leið­rétta full­yrð­ingar um að boð Frakka til Íslend­inga um að senda full­trúa til athafn­ar­innar hafi á ein­hvern hátt verið afþakk­að. Hvorki for­sæt­is­ráð­herra né aðrir afþökk­uðu boð­ið. Strax og til­kynn­ing bar­st um sam­stöðu­fund­inn var haf­ist handa við að gera ráð­staf­anir svo hægt yrð­i að þiggja boðið og tryggt yrði að full­trúi Íslands mætti.

For­sæt­is­ráð­herra lét kanna hvort mögu­leiki væri á að hann gæti mætt sjálf­ur til athafn­ar­inn­ar. Vegna ýmissa sam­verk­andi þátta, einkum skamms fyr­ir­vara, ­ferða­tíma og dag­skrár ráð­herra, var hvorki for­sæt­is- né utan­rík­is­ráð­herra ­fært að taka þátt í göng­unni. Full­trúi Íslands í henni var Nína Björk Jóns­dótt­ir, stað­geng­ill sendi­herra Íslands í Frakk­land­i."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None