Kvika selur í Íslenskum verðbréfum: Stapi og Kaldbakur sögð meðal kaupenda

sigurduratli.jpg
Auglýsing

Stjórn­endur Kviku, bank­ans sem varð til eftir sam­ein­ingu MP banka og Straums fjár­fest­inga­banka, hafa ákveðið að selja hlut félags­ins í Íslenskum verð­bréfum til breiðs hóps fjár­festa. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá bank­an­um, og greint frá því að á næstu dögum verði form­lega til­kynnt um kaup­in.

Hlutur bank­ans í Íslenskum verð­bréfum er 66,35% og nýverið barst til­boð í hlut­inn sem ákveðið var að taka „eftir mikla yfir­legu“ að því er haft er eftir for­stjór­arnum Sig­urði Atla Jóns­syni.

Í frétt hjá Við­skipta­blað­inu kemur fram að í þessum hópi fjár­festa séu um 20 kaup­end­ur. Þar á meðal séu líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi og Kald­bak­ur, sem er dótt­ur­fé­lag útgerð­ar­fé­lags­ins Sam­herja. Eng­inn ein­stakur fjár­festir er sagður munu eiga meira en tíu pró­senta hlut.

Auglýsing

Bank­inn segir að engin sam­þætt­ing hafi átt sér stað á milli bank­ans og Íslenskra verð­bréfa þrátt fyrir góð sam­skipti þar á milli. Því verði engar breyt­ingar á starf­semi bank­ans við söl­una.

Átök um eign­ar­haldið og sam­ein­ingu



Nokkur átök áttu sér stað um eign­ar­haldið á Íslenskum verð­bréfum í lok síð­asta árs, sem Kjarn­inn greindi ítar­lega frá. MP banki, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna (LI­VE) og félag í eigu Garð­ars K. Vil­hjálms­sonar gerðu til­boð í 27,5 pró­sent hlut Íslands­banka í Íslenskum verð­bréfum í októ­ber í fyrra. Föstu­dag­inn 24. októ­ber var ákveðið að taka til­boð­inu en þann sama dag bár­ust til­boðs­gjöf­unum upp­lýs­ingar um að Straumur hefði lagt inn til­boð í hlut­inn þegar allt stefndi í að kaupin myndu ganga í gegn. Þær upp­lýs­ing­ar, sem voru byggðar á orðrómi á fjár­mála­mark­aðn­um, reynd­ust ekki rétt­ar. Straumur gerði aldrei til­boð í hlut­inn.

Hins vegar keypti bank­inn 64,3 pró­sent hlut Sæv­ars Helga­sonar og Ásgeirs Ásgeirs­son­ar, í gegnum félagið Gunner ehf., í Íslenskri eigna­stýr­ingu ehf., sem átti þá 21,83 pró­sent hlut í Íslenskum verð­bréf­um. Straumi bauðst síðan að ganga inn í til­boð í aðra hluti í Íslenskum verð­bréfum á grund­velli for­kaups­rétt­ar­á­kvæð­is. Þar á meðal var 27,5 pró­sent hlutur Íslands­banka sem MP banki (10 pró­sent), LIVE (10 pró­sent) og Garðar Vil­hjálms­son (7,5 pró­sent) til­kynntu um kaup á í októ­ber. Í lok des­em­ber í fyrra hafði Íslensk eigna­stýr­ing eign­ast 58,14% hlut.

Í tengslum við þessar vend­ingar var vöngum velt yfir sam­ein­ingu MP banka, Straums og Íslenskra verð­bréfa. Af því varð ekki en í febr­úar á þessu ári var svo greint frá því að milli MP banka og Straums hefði náðst sam­komu­lag um sam­runa bank­anna. Þeir sam­ein­uð­ust svo form­lega í júní.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None