„Læðist að manni sterkur og rökstuddur grunur að þrýstingur Sjálfstæðisflokksins hafi orðið ofan á“

Athygli vekur að þingmenn Vinstri grænna og Framsóknarflokksins hafi ekki stutt bókun á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun þar sem hvers kyns árásir á óbreytta borgara í átökum undanfarna daga á svæðum Ísraels og Palestínumanna voru fordæmdar.

Mótmæli við Hörpu í gær til stuðnings Palestínumönnum.
Mótmæli við Hörpu í gær til stuðnings Palestínumönnum.
Auglýsing

Þing­menn Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Við­reisnar og Mið­flokks­ins í utan­rík­is­mála­nefnd hvetja til þess að utan­rík­is­ráð­herrar Norð­ur­landa beiti sér sam­eig­in­lega á alþjóð­legum vett­vangi í kröf­unni um taf­ar­laust vopna­hlé á svæðum Ísra­els og Palest­ínu­manna og að rík­is­stjórn Íslands beiti sér fyrir að neyð­ar­að­stoð og hjálp­ar­gögn kom­ist til nauð­staddra á svæð­inu.

Þetta kemur fram í bókun sem lögð var fram á fundi utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis í morg­un. Áheyrn­ar­full­trúi Pírata studdi bók­un­ina en þing­menn VG, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks í utan­rík­is­mála­nefnd gerðu það ekki. Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í utan­rík­is­mála­nefnd, segir í sam­tali við Kjarn­ann að það læð­ist að henni sá grunur að þrýst­ingur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi orðið ofan á og orðið þess vald­andi að þing­menn þess­ara flokka hafi ekki verið á bók­un­inni.

„Þing­menn utan­rík­is­mála­nefndar for­dæma hvers kyns árásir á óbreytta borg­ara í átökum und­an­farna daga á svæðum Ísra­els og Palest­ínu­manna. Þing­menn­irnir leggja áherslu á að alþjóða­lög og mann­rétt­indi séu virt í hví­vetna og að öryggi almenn­ings verði tryggt. Ólíð­andi er að loft­árásum sé beitt gegn sak­lausum borgum þar sem fjöldi barna hefur látið lífið í verstu stríðs­á­tökum á svæð­inu síðan 2014,“ segir í bók­un­inni.

Auglýsing

Þá kemur fram að þing­menn nefnd­ar­innar harmi að eld­flauga­árásum sé beint gegn óbreyttum borg­ur­um. „Al­þjóða­sam­fé­lagið verður að gefa skýr skila­boð um að leggja eigi niður vopn strax og að frið­sam­legar lausnir í deil­unni milli Ísr­ael og Palest­ínu sé eina lausn­in. Ísland á í sér­stöku sam­bandi við bæði Palest­ínu og Ísr­a­el. Ísland var fyrsta vest­ræna ríkið til að við­ur­kenna sjálf­stæði og full­veldi Palest­ínu með sam­hljóða sam­þykkt Alþingis 2011 en Ísland lék einnig sér­stakt hlut­verk þegar Ísr­ael varð full­valda ríki árið 1948. Þing­menn­irnir hvetja til þess að utan­rík­is­ráð­herrar Norð­ur­landa beiti sér sam­eig­in­lega á alþjóð­legum vett­vangi í kröf­unni um taf­ar­laust vopna­hlé og að rík­is­stjórn Íslands beiti sér fyrir að neyð­ar­að­stoð og hjálp­ar­gögn kom­ist til nauð­staddra á svæð­in­u.“

Mjög mik­il­vægt að skýr skila­boð komi frá nefnd­inni

Rósa Björk segir að það sé merki­legt að sjá að þing­menn VG og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi ekki treyst sér til að vera á þess­ari bókun í ljósi stefnu VG frá stofnun flokks­ins og sögu Fram­sókn­ar­flokks­ins í málum Palest­ínu­manna.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir Mynd: Bára Huld Beck

„Það læð­ist að manni sterkur og rök­studdur grunur að þrýst­ingur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi orðið ofan á og orðið þess vald­andi að þing­menn þess­ara flokka hafi ekki verið á bók­un­inni. Aftur á móti er fagn­að­ar­efni að þing­menn ann­arra flokka hafi verið með á henn­i.“

Hún segir það vera mjög mik­il­vægt að skýr skila­boð komi frá nefnd­inni þegar utan­rík­is­ráð­herrar Banda­ríkj­anna og Rúss­lands funda hér á landi, sér­stak­lega í ljósi þess að þing­menn hafa ekki tæki­færi til að tala beint við þá.

Athuga­semd rit­stjórn­ar: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar sagði að meiri­hluti nefnd­ar­innar stæði að bók­un­inni. Það er ekki rétt, heldur er rétt­ara að tala um þing­menn nefnd­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent