Landsbankinn seldi jörð á 46 milljónir, helmingur nú til sölu á 45 milljónir

Screen.Shot-.2014.11.29.at-.15.29.04.jpg
Auglýsing

Lands­bank­inn seldi jörð­ina Fljóts­hólar 2 og 3 í Flóa­hreppi til Ragn­ars Stef­áns­sonar og Sól­veigar Bjarkar Ein­ars­dóttur á 46 millj­ónir króna í októ­ber árið 2012. Þetta kemur fram í kaup­samn­ingi vegna jarð­ar­inn­ar, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um. Bruna­bóta­mat jarð­ar­innar hljóðar upp á 50,5 millj­ónir króna.

Nú er helm­ings­hlutur jarð­ar­inn­ar, sem er sögð ein flottasta frí­stunda­jörð Suð­ur­lands sam­kvæmt fast­eigna­aug­lýs­ingu, aug­lýst til sölu fyrir 45 millj­ónir króna. Jörðin liggur niður að sjó og að Þjórs­ár­ósum vestan meg­in, og er í 45 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá höf­uð­borg­inni.

Fast­eigna­sal­inn sem ann­ast söl­una á jörð­inni, Sig­ur­björn Á. Frið­riks­son hjá fast­eigna­söl­unni TORG, brást ókvæða við fyr­ir­spurn blaða­manns Kjarn­ans og vildi engar upp­lýs­ingar veita, og sagði málið blaða­mann­inum óvið­kom­andi.

Auglýsing

Þrettán fast­eign­ir, þar af tvö íbúð­ar­hús



Á jörð­inni eru þrettán fast­eign­ir, svo sem hest­hús, hlöð­ur, sem eru sam­tals um ell­efu hund­ruð fer­metrar að stærð, þar af nýupp­gert 223 fer­metra íbúð­ar­hús sem og annað minna íbúð­ar­hús um sjö­tíu fer­metrar að stærð. Jörðin er 113 hekt­arar að stærð, þar af 23 hekt­arar af rækt­uðu landi og 90 hekt­arar undir bit­haga, en þar að auki eru 250 hekt­ar­ar, aðal­lega sandar og leir­ur, í sam­eigu með Fljóts­hólum 1 og 4.

Á meðal jarð­hlunn­inda má nefna neta­lagnir og stang­veiði fyrir lax og sjó­birt­ing í Þjórsá, reki og sel­veiði, sil­ungs­veiði í lækjum og síkjum á land­ar­eign­inni, fugla­veiði á leirum, sönd­um, í túnum og hög­um. Þá er, sam­kvæmt fast­eigna­aug­lýs­ingu, góður mögu­leiki til hrossa­rækt­unar og tóm­stunda­bú­skap­ar, svo sem sauð­fjár­rækt­unar og garð­á­vaxta­rækt­un­ar.

Eins og áður segir keyptu Ragnar Stef­áns­son og Sól­veig Björk Ein­ars­dóttir jörð­ina af Lands­bank­anum í októ­ber 2012 fyrir 46 millj­ónir króna. Nokkrum dögum síð­ar, eða þann 7. des­em­ber 2012, seldu þau 75 pró­sent af jörð­inni til þriggja ein­stak­linga sem eign­uð­ust allir fjórð­ungs­hlut hver. Kaup­verðið er ekki að finna í þing­lýstum gögnum vegna söl­unn­ar. Þá er Sól­veig Björk ekki lengur skráð sem einn eig­enda að jörð­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None