Ístak hf., dótturfélag Landsbankans, hefur selt fyrirtækið Ístak Ísland ehf. til danska verktakafyrirtækisins Per Aarsleff AS sem átti hagstæðasta tilboðið í félagið í opnu söluferli sem hófst í janúar síðastliðinn. Kaupverðið er trúnaðarmál. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón söluferlinu.
Söluferlið hófst með auglýsingu þann 22. janúar 2015 og var opið öllum áhugasömum fjárfestum sem stóðust hæfismat og gátu sýnt fram á fjárfestingargetu umfram 500 milljónir króna.
Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að Per Aarsleff AS sé rótgróið og sterkt félag sem er skráð á Nasdaq OMX Copenhagen. Árstekjur félagsins nema jafnvirði um 170 milljarða íslenskra króna. Félagið sinnir verktöku í mörgum löndum meðal annars á Grænlandi og nú einnig á Íslandi. Starfsmenn eru um 4.500 talsins.
Markaðssvæði Ístaks Íslands ehf., sem á sér 45 ára sögu, er Ísland, Grænland og Færeyjar. Félagið sérhæfir sig í verktöku á sviði virkjana, jarðgangna, hafnarmannvirkja, stærri iðnaðarmannvirkja og stálsmíði og er einn fárra innlendra valkosta þegar kemur að framkvæmdum og þjónustu við virkjanir og stóriðju.
Seljandinn Ístak hf., dótturfélag Landsbankans, mun áfram sinna samningsbundnum verkefnum í Noregi.