Búast við 50 milljörðum frá Landsbankanum fyrir árslok

10016380525-fb1c4ee434-z.jpg
Auglýsing

Slitabú gamla Lands­bank­ans áætlar að Lands­bank­inn end­ur­greiði nærri 50 millj­arða króna í erlendri mynt inn á rúm­lega 200 millj­arða króna skuld sína gagn­vart slita­bú­inu fyrir árs­lok. Það er nærri 20 millj­örðum króna hærri greiðslu en gert var ráð fyrir í sam­komu­lagi stærstu kröfu­hafa gamla Lands­bank­ans (LBI) við fram­kvæmda­hóp stjórn­valda um losun hafta frá því í júní síð­ast­liðn­um.

Þetta kemur fram í DV í dag en blaðið hefur undir höndum gögn sem slita­stjórn LBI sendi kröfu­höfum í fyrra­dag. Hreiðar Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála hjá Lands­bank­an­um, stað­festir í sam­tali við DV að til skoð­unar sé að greiða allt að 50 millj­arða inn á skuld­ina, fyrr en skulda­bréfið gerir ráð fyr­ir. Þegar hafi verið ákveðið að greiða upp á þessu ári ríf­lega 30 millj­arða sem eru að óbreyttu á gjald­daga á næsta ári. Sú upp­hæð gæti orðið hærri.

Leita á erlenda mark­aði



Í sam­tali við frétta­stofu Bloomberg í síð­ustu viku, og Kjarn­inn greindi frá, greindi Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, frá áformum um að bank­inn sæki sér fjár­magn á erlendum mörk­uðum í ár. Hann sagði útlit vera fyrir að kjör þar geti verið hag­stæð­ari en á láni gagn­vart gamla bank­anum og því vilji bank­inn end­ur­fjár­magna það lán og end­ur­greiða slita­bú­inu. Íslands­banki og Arion banki hafa báðir sótt sér fjár­magn erlend­is.

Þrotabú LBI og Lands­bank­inn komust að sam­komu­lagi í fyrra um leng­ingu lán­anna, alls um 200 millj­arðar króna, til árs­ins 2026 á óbreyttum 2,9 pró­sent vöxtum yfir LIBOR-milli­banka­vöxtum fram til árs­ins 2018. Eftir 2020 mun vaxta­á­lag yfir LIBOR hækka í 4,05 pró­sent á ári.

Auglýsing

Stein­þór sagði í við­tali við Bloomberg að það gæti verið báður aðilum hag­kvæmt að lánið verði end­ur­greitt, Lands­bank­inn gæti fundið betri kjör á mark­aði og end­ur­greiðslan myndi auð­velda slita­stjórn­inni að greiða kröfu­höf­um.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None