Landspítalinn biðlar til starfsfólks að bjóða sig fram í ebólu-teymi

landspitali-fossvogi-02-715x320.jpg
Auglýsing

Land­spít­al­inn byrj­aði í gær að aug­lýsa eftir sjálf­boða­lið­um, á meðal heil­brigð­is­starfs­fólks spít­al­ans, í sér­stakt við­bragð­steymi vegna ebólu-far­ald­urs­ins. Teymið er hluti af við­bragðs­á­ætlun sjúkra­húss­ins vegna heims­far­ald­urs­ins. Spít­al­inn hyggst ekki skikka starfs­fólk í teymið, en því er ætlað að með­höndla ýmist ein­stak­linga sem smit­aðir eru af veirunni, eða þá sem eru grun­aðir um að vera smit­að­ir. Enn hefur engin Íslend­ingur smit­ast af veirunni, svo vitað sé.

Tólf hjúkr­un­ar­fræð­inga þarf til að ann­ast hvern sjúk­ling



Til marks um umfang við­bragðs­á­ætl­unar Land­spít­al­ans, gerir hann ráð fyrir tólf hjúkr­un­ar­fræð­ingum á hvern sjúk­ling á sól­ar­hring. Skipu­lagið gerir ráð fyrir að tveir hjúkr­un­ar­fræð­ing­ar, í sér­stökum þartil­gerðum hlífð­ar­bún­ing­um, ann­ist hvern sjúk­ling tvo til þrjá tíma í senn. Ör vakta­skipti má rekja til hlífð­ar­bún­ing­anna, sem ein­ungis er hægt að klæð­ast stuttan tíma í senn, en hverjum bún­ingi er fargað eftir hverja notk­un. Enda smit­hætta mest þegar farið er úr og í gall­ana. Við­bragð­steymið mun und­ir­gang­ast strangar æfing­ar, til að vera við öllu búið þegar og ef upp kemur ebólu-til­felli á Íslandi.

Helst hafa þrjár sviðs­mynd­ir. varð­andi mögu­lega komu ebólu veirunnar til lands­ins, verið nefnd­ar. Að Íslend­ingur smit­ist af veirunni erlend­is, komi með hana til lands­ins ein­kenna­laus og veik­ist svo. Ein­stak­lingur smit­aður af ebólu-veirunni getur verið ein­kenna­laus í allt að þrjár vik­ur, en hann er þó ekki smit­andi fyrr en sjúk­dóms­ein­kennin koma í ljós. Önnur sviðs­myndin gerir ráð fyrir að far­þega­þotu verði nauð­lent á Íslandi með smit­aðan ein­stak­ling, sem hafi farið að sýna ein­kenni ebólu í loft­helgi Íslands, og sú þriðja að smit­aður Íslend­ingur komi inn á spít­al­ann af göt­unni.

Getur tekið 3-4 daga að sann­reyna smit



Komi upp grunur um smit­aðan ein­stak­ling á Íslandi, getur það tekið þrjá til fjóra daga að fá smit hans stað­fest, þar sem senda þarf sýni úr við­kom­andi til Stokk­hólms til grein­ing­ar. ­Grein­ing­ar­tími ann­ars stað­ar, þar sem öll tæki og tól eru til staðar til sýna­grein­ing­ar, hleypur á nokkrum klukku­stund­um.

Ef upp kemur til­vik þar sem grunur leikur á að Íslend­ingur hafi smit­ast erlend­is, er ekki víst að hann verði sendur til Íslands. Þá verður vafa­lítið reynt að koma honum á sjúkra­stofnun þar sem hvað bestu mögu­legu aðstæður eru fyrir hendi, en sú er ekki raunin hér á landi. Meðal ann­ars var fjallað um þetta á fundi Sval­barða­nefnd­ar­inn­ar, sem er sam­ráðs­vett­vangur Norð­ur­land­anna um heil­brigð­is­við­bún­að, á fundi sem fram fór í síð­ustu viku í Reykja­vík.

Auglýsing

Dán­ar­tíðni þeirra sem smit­ast af ebólu er 40 til 90 pró­sent, en til þessa hafa yfir 4500 ­manns lát­ist af völdum veirunn­ar. Ástæða þess að dán­ar­tíðnin er svo á flökt­i er sú að tölur frá Vest­ur­-Afr­íku eru á reiki. Því hefur verið spáð að í lok jan­úar verði um 1,4 millj­ónir manna smit­aðir af ebólu-veirunni, ef ekki tekst að hamla útbreiðslu henn­ar. Ebólu far­ald­ur­inn er versta heil­brigð­isvá sem steðjað hefur að heims­byggð­inni á sögu­legum tím­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None